Sport

Ragnheiður Sara fórnarlamb svikahrapps

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir. Vísir/Daníel
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, afrekskona í crossfit og lyftingum, greinir frá því á Facebook-síðu sinni að óprúttinn aðili hafi komið upp annarri síðu á samfélagsmiðlum undir hennar nafni.

Síðan, sem má sjá hér, er þó ekki tengd henni eins og hún bendir sjálf á. Þar er ýmis varningur seldur sem og þjálfunarforrit fyrir snjallsíma undir hennar nafni.

Hvetur hún alla sína rúmlega 100 þúsund fylgendur á Facebook að tilkynna svikahrappinn til stjórnenda Facebook í þeirri von um að síðan verði tekin niður.

Eftir að Ragnheiður Sara benti á þetta í gær hefur lýsingu hinnar síðunnar verið breytt í að hún sé aðdáendasíða. Gamlar færslur eru þó skrifaðar eins og þær komi frá henni sjálfri.

Hér fyrir neðan má sjá færslu frá Ragnheiði Söru þar sem hún segir frá svikasíðunni, sem er með rúma 35 þúsund fylgendur.


Tengdar fréttir

Ragnheiður Sara hafði sigur í Dúbaí

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir varð hlutskörpust á sterku crossfit- og fitnessmóti í Dúbaí, Dubai Fitness Championship, í dag.

Níu Íslandsmet í Ólympískum lyftingum kvenna

Keppni í Ólympískum lyftingum kvenna á Reykjavíkurleikunum fór fram í Laugardalshöllinni í dag. Níu Íslandsmet voru sett í fullorðinsflokkum og fimm í unglingaflokkum en keppt var bæði í snörun og jafnhendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×