Klæðaburður tilvonandi forsetafrúar Bandaríkjanna vakti athygli en hún klæddist ljósbláum kjól og jakka frá Ralp Lauren með hanska og í skóm í sama lit. Athygli vekur að fatnaðurinn þykir svipa mjög til þess sem Jaqueline Kennedy klæddist við setningarathöfn eiginmanns síns árið 1961, en eins og sjá má á myndinni var hún einnig í ljósbláu með hanska í sama lit.
Það styttist í setningarathöfnina sjálfa og augu heimspressunnar eru á Washington í dag.




#Inauguration Day style: @MELANIATRUMP mirrors Jackie Kennedy in @RalphLauren ensemble https://t.co/WUSgU4ttQP pic.twitter.com/2NaiE0f3W2
— TODAY (@TODAYshow) January 20, 2017