Omeyer í ham í stórsigri Frakka Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. janúar 2017 22:05 Omeyer varði 14 skot í fyrri hálfleik. vísir/getty
Frakkar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Brasilíumenn að velli í upphafsleik HM 2017. Lokatölur 31-16, Frakklandi í vil. Frakkar fengu lygilega markvörslu í leiknum í París í kvöld. Hinn fertugi Thierry Omeyer varði 14 skot í fyrri hálfleik (67%) og Vincent Gerard níu í þeim seinni (50%). Sá síðarnefndi skoraði einnig eitt mark. Frakkar byrjuðu leikinn af miklum krafti og eftir 17 mínútur var staðan orðin 10-3. Tíu mörkum munaði á liðunum í hálfleik, 17-7. Didier Dinart, sem stýrði Frökkum í fyrsta sinn á stórmóti í kvöld, gat leyft sér að dreifa álaginu og koma sem flestum leikmönnum í gang fyrir framhaldið. Í seinni hálfleik jókst munurinn enn frekar og Frakkar unnu að lokum 15 marka sigur, 31-16. Valentin Porte var markahæstur í franska liðinu með sex mörk. Adrien Dipanda, Michael Guigou, Nikola Karabatic, Daniel Narcisse og Olivier Nyokas skoruðu þrjú mörk hver. Næsti leikur Frakka er gegn Japan á laugardaginn.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Lungað féll saman hjá NBA-stjörnu Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Enski boltinn Varði skot mótherja með skónum sínum Körfubolti Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó Fótbolti Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Enski boltinn Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Fleiri fréttir Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Sjá meira