„Ég stofnaði fatamerkið Júniform árið 2004. Í raun hófst þetta upphaflega um tveimur árum fyrr sem hrærigrautur af lítilli vinnustofu og lítilli verslun. Þetta vatt upp á sig og alltaf varð meira og meira að gera. Ég var hvorki lærður fatahönnuður né hafði áður staðið í verslunarrekstri. Með tímanum fór viðskiptavinum fjölgandi,“ segir Birta Björnsdóttir fatahönnuður.

„Lífið í Barcelona er afar þægilegt og stressfrítt. Það er óneitanlega vel metið að geta vaknað allan ársins hring í birtu og hlýju. Lífið hér er einnig mikið utandyra og félagslega er það töluvert öðruvísi en hér á landi. Við hjónin höfðum lengi verið með mikla útþrá en lífið virtist ganga of vel á Íslandi til að geta farið frá því. Það kom samt sá dagur að við ákváðum að slá til. Ég lokaði versluninni sem þá gekk afar vel og við héldum á vit ævintýranna til Barcelona. Nú hafa aðrir tekið við Júniform-kyndlinum og ég held mína leið,“ útskýrir Birta og bætir við að hún sé komin með nýtt merki sem ber nafnið By Birta.
Óhætt er að segja að By Birta sé virkilega persónuleg hönnun, þar sem Birta saumar nánast allar flíkurnar sjálf.

En hvar færðu innblástur fyrir hönnunina þína?
„Alls staðar, úr tímaritum, sjónvarpi eða á götum Barcelona-borgar. Eftir þetta mörg ár í faginu kemur innblásturinn oft lúmskt að manni. Oft fæ ég einhverja tilfinningu fyrir því sem koma skal í tískustraumum komandi árs og hendi í nokkrar flíkur. Svo einhverju seinna fer ég að sjá þessa sömu hluti dúkka upp í blöðum og búðum. Það er ekki eins og ég sjái þessa hluti skýrt áður, heldur er eins og maður sjái hvert hlutirnir stefna,“ segir Birta.
Hægt verður að kaupa vörur af Birtu í gegnum vefverslunina bybirta.com þar sem allir geta keypt þær flíkur sem eru til sölu þar og fær fólk þær svo sendar innan skamms.

Fram undan er nóg um að vera hjá Birtu en á þessari stundu er hún stödd á Íslandi með fjölskyldu sinni.
„Mér finnst ógurlega gott að vera komin heim og góð tilbreyting að koma í myrkrið og kuldann, það er svo kósí! Ég er núna á fullu að sinna vefbúðinni og því sem fylgir. Í janúar mun ég svo halda til Spánar aftur og halda áfram að hanna og sauma,“ segir Birta að lokum.