Skelfilegur lokaleikur og Ísland úr leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. desember 2016 17:30 Þórey Rósa Stefánsdóttir var besti leikmaður íslenska liðsins í Færeyjum um helgina. vísir/valli
Ísland kemst væntanlega ekki í umspil um sæti á HM 2017 í handbolta eftir sjö marka tap, 20-27, fyrir Makedóníu í lokaleik liðsins í undanriðli 3 í dag. Ísland mátti tapa leiknum með sex marka mun en í dag fór allt úrskeiðis. Íslenska liðið þarf núna að treysta á að Færeyjar nái stigi af Austurríki til að eiga möguleika á að komast áfram. Líkurnar á því eru þó sáralitlar. Íslenska liðið vann fyrstu tvo leiki sína í riðlinum en spilaði engan veginn nógu vel í leiknum í dag. Íslenska vörnin var míglek í byrjun og eftir átta mínútur var staðan 2-7, Makedóníu í vil. Ísland vann sig þó inn í leikinn og í hálfleik var staðan 11-15, Makedóníu í vil. Makedónar skoruðu fyrstu þrjú mörkin í seinni hálfleik og eftir það var róðurinn þungur. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka komst Makedónía í 18-26. Axel Stefánsson tók þá leikhlé og íslenska liðið svaraði með tveimur mörkum í röð. Makedónía átti hins vegar síðustu sóknina og Elena Gjeorgjievska skoraði 27. mark makedónska liðsins alveg undir lokin. Þórey Rósa Stefánsdóttir og Karen Knútsdóttir skoruðu fimm mörk hvor fyrir Ísland í dag.Uppfært 19:30Austurríki vann Færeyjar og Ísland kemst því ekki áfram.Mörk Íslands: Karen Knútsdóttir 5/3, Þórey Rósa Stefánsdóttir 5, Rut Jónsdóttir 2, Sunna Jónsdóttir 2, Birna Berg Haraldsdóttir 2, Arna Sif Pálsdóttir 1, Steinunn Hansdóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 1.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira