„Ég vil þakka liðinu frábæran stuðning og óska Nico til hamingju. Ég mun skemmta mér vel í kvöld og fagna tímabilinu. Maður getur ekki unnið alla titlana. Ég gerði allt sem ég gat. Nico átti betra ár hvað varðar bilanir. Þess vegna er staðan eins og hún er. Ég hlakka til báráttunnar við hann á næsta ári,“ sagði Hamilton sem vann keppnina en tapaði titlinum með fimm stiga mun.
„Þetta var ekki auðveldasta keppni sem ég hef ekið [Max] Verstappen olli vandræðum í upphafi og svo varð ég að verjast vel undir lokin. Ég er bara svo þakklátur liðinu og aðstandendum mínum,“ sagði Rosberg klökkur, eftir góðan akstur og flott tilþrif. Hann er nú heimsmeistari ökumanna í fyrsta sinn.
„Ég vil byrja á að óska Nico til hamingju. Ég var orðinn griplítill undir lokin. Ég gat svo notað aflið sem við höfðum undir lokin. Liðið hefur staðið sig vel í ár en hefur þurft að þola mikla gagnrýni. Það er gott að enda árið á góðum nótum,“ sagði Sebastian Vettel sem varð þriðji á Ferrari og svo nálægt því að blanda sér í baráttu Mercedes manna.
„Þetta eru búin að vera ótrúleg þrjú tímabil. Nico er verðugur heimsmeistari eftir þetta tímabil. Þetta var orðið óhugnalega tæpt undir lokin. Ég vil ekki tjá mig of mikið um það sem Lewis var að gera. Ég var ekki að aka bílnum svo ég veit ekki hversu mikið hraðar hann hefði geta farið,“ sagði Paddy Lowe, tæknistjóri Mercedes. Lowe hafði ítrekað óskað eftir því við Hamilton að auka hraðan til að loka á hættuna að aftan sem Vettel og Verstappen voru að valda.

Sjá einnig: Horner: Hamilton ætti að beita brögðum.
„Ég er þakklátur fyrir að geta endað ferilinn með harðri baráttu og þetta er gott augnablik til að setja punkt. Ég vil óska Nico til hamingju það er skemmtilegt að sjá nýjan heimsmeistara. Það er vert að nefna Jenson [Button] líka þótt keppnin hafi farið svona hjá honum en þá á hann alla þá virðingu skilið sem hann hefur fengið,“ sagði Felipe Massa sem varð níundi í sinni síðustu keppni í Formúlu 1.
„Við tókum ákvörðun um að taka eitt hlé. Það gerði Sebastian kleift að taka fram úr mér undir lokin enda dekkin orðin slitin. Við tókum þessa ákvörðun og ég er ánægður með hana,“ sagði Max Verstappen sem varð fjórði í dag á Red Bull bílnum.
„Lewis ætti ekki að vera óhamingju samur. Hann vann tíu keppnir í ár og hefur unnið þrjá heimsmeistaratitla. Hann hefur áorkað mikið og getur verið sáttur. Nico átti daginn í dag,“ sagði Jackie Stewart, þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1.