Dreymdi í ár um að hitta þennan mann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. nóvember 2016 06:00 Egill Øydvin Hjördísarson rekur upp fagnaðaróp eftir að hafa yfirbugað Pólverjann Pawel Zakrzewski í úrslitabardaganum á EM í MMA í Prag á laugardagskvöldið. mynd/kjartan páll/mjölnir.is „
Ætli þetta sé ekki besta tilfinningin,“ sagði Egill Øydvin Hjördísarson, nýkrýndi Evrópumeistarinn, þegar Fréttablaðið heyrði í honum hljóðið í gær. Kvöldið áður tryggði Egill sér gullið í léttþungavigtinni á EM í MMA í Prag. Hann varð þar með þriðji Íslendingurinn sem verður Evrópumeistari í greininni. Á EM í fyrra unnu Sunna Rannveig Davíðsdóttir og Bjarki Þór Pálsson bæði til gullverðlauna í sínum flokkum. Í úrslitabardaganum mætti Egill Pólverjanum Pawel Zakrzewski. Egill var með yfirhöndina í bardaganum og kláraði Zakrzewski með hengingu þegar nokkrar sekúndur voru eftir af 2. lotu. „Við vissum nokkurn veginn hvernig týpa þetta væri, hann er frekar lágvaxinn en breiður og hraustur. Mig grunaði að hann myndi hjóla í mig og reyna að henda mér. Planið var að leyfa honum ekki að taka mig niður heldur halda þessu standandi og þreyta hann. Hann var eiginlega bara búinn á því þegar komið var fram í 2. lotu á meðan ég var frekar ferskur,“ sagði Egill og bætti því við að andlegi undirbúningurinn fyrir bardagann hafi verið meira krefjandi en sá líkamlegi. „Þetta var strembið. Það eru miklar tilfinningar í hverjum bardaga. Líkaminn var alveg til í þetta en það var erfitt að koma hausnum í gang.“ Egill tók einnig þátt á EM í Englandi í fyrra þar sem hann féll úr leik fyrir Búlgaranum Tencho Karaenev. Draumur Egils var að mæta honum aftur á EM í ár og honum varð að ósk sinni. „Mig er búið að dreyma um að hitta þennan mann í eitt ár. Ég veit ekki hversu oft ég er búinn að ímynda mér hvernig ég ætla að vinna hann, hvað ég ætla að gera við hann. Þetta var þvílíkur léttir, mér leið eins og ég hefði unnið mótið þá. Gullið var eiginlega bara bónus,“ sagði Egill sem kláraði Karaenev með hengingu í 1. lotu. En hver var munurinn frá því í fyrra? „Mig langaði virkilega til að keppa núna. Það var enginn efi. Ég held að það hafi verið stærsti munurinn,“ sagði Egill sem segist vera betri bardagamaður núna en hann var í fyrra. Hann byrjaði að æfa MMA sumarið 2012 en hafði engan grunn í öðrum bardagaíþróttum.Egill sigurreifur með gullverðlaunapeninginn um hálsinn og skrýddur íslenska fánanum.mynd/kjartan páll/mjölnir.isEgill sigraði Bretann Navid Rostaie í 16-manna úrslitum en í átta-manna úrslitunum kom upp sérkennileg staða. Þar dróst Egill nefnilega gegn landa sínum, herbergisfélaga og vini, Bjarna Kristjánssyni. Mistök í skráningu urðu þess valdandi að þessi staða kom upp. „Við vorum pirraðir þegar við mættum og sáum hvernig var dregið, því það var búið að lofa okkur að þetta myndi ekki gerast. Við hefðum aldrei báðir skráð okkur í flokkinn ef við hefðum vitað að þetta væri möguleiki,“ sagði Egill og bætti því við að mótshaldarar hefðu viðurkennt mistök sín. Egill og Bjarni börðust ekki heldur var málið leyst með því að sá síðarnefndi gaf bardagann. Bjarni fékk því engan bardaga á mótinu. „Hann var eitthvað tæpur og átti erfitt með að sofa vegna verkja í öxlinni og var með brákað rifbein,“ sagði Egill um ástæðu þess að Bjarni ákvað að gefa bardagann. „Þetta var mjög pirrandi. Ég hefði alveg verið til í að fara á móti honum í úrslitabardaga. Það er allt öðruvísi, þá erum við báðir sigurvegarar úr sama liðinu. En fyrir bardaga inni í miðri þvögunni fannst okkur þetta ekki þess virði,“ sagði Egill. Egill vonast til að Evrópumeistaratitillinn opni fleiri dyr fyrir hann í MMA-heiminum. „Þetta veitir manni gríðarlegan innblástur. Ég er núna að skoða hvort það sé ekki hægt að gera feril úr þessu, hvort ég geti ekki minnkað við mig á öðrum sviðum,“ sagði Egill sem er upptekinn maður. Hann er í fullri vinnu hjá Lögreglunni og í fullu námi í Lögregluskólanum, auk þess sem hann æfir a.m.k. tvo og hálfan tíma á dag. Þá er hans fyrsta barn væntanlegt í heiminn. „Það er nóg að gera en maður býr bara til tíma,“ sagði Evrópumeistarinn Egill að lokum.
MMA Mest lesið Kossar kærastans ástæðan fyrir því hún féll á lyfjaprófi Sport „Langaði virkilega að fara að gráta þegar ég kom inn í klefa“ Fótbolti KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Íslenski boltinn Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Íslenski boltinn Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Handbolti Þurfa stelpurnar okkar bara að finna sér nýjan Sigurwin? Fótbolti Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Enski boltinn Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Körfubolti Sá óheppnasti enn á ný óheppinn Sport Fullt af Betum upp í stúku á EM í gær Fótbolti Fleiri fréttir „Vandamálið er ekki að við eigum ekki nógu góða leikmenn“ Freyr missir lykilmann fyrir metfé Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Hafa skyldum að gegna gagnvart landsliðinu og þjóðinni Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar Fullt af Betum upp í stúku á EM í gær KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli „Langaði virkilega að fara að gráta þegar ég kom inn í klefa“ Þurfa stelpurnar okkar bara að finna sér nýjan Sigurwin? Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Kossar kærastans ástæðan fyrir því hún féll á lyfjaprófi Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Sá óheppnasti enn á ný óheppinn Dagskráin í dag: Blikar í Meistaradeildinni Drykkjulæti trufluðu leik á Wimbledon Frá Midtjylland til Newcastle Dreymdi um dans og söng inni í klefa: „Erfitt að koma í orð hvernig manni líður“ Heimir mjög ósáttur við dómarann: „Þetta er bara dýfa“ Vörn Grindavíkur áfram hriplek Endurkomujafntefli heldur Portúgölum á lífi Elanga að ganga til liðs við Newcastle Szczesny ekki hættur enn Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Heimsmeistararnir í ham gegn Belgíu Ellefu reiðhjólum stolið frá Cofidis liðinu 47 ára boxhetja snýr aftur í hnefaleikahringinn Sjá meira