Handbolti

Snorri Steinn með fjögur mörk í sigri Nimes

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snorri Steinn er markahæstur í frönsku deildinni.
Snorri Steinn er markahæstur í frönsku deildinni. vísir/ernir
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk þegar Nimes vann þriggja marka sigur á Dunkerque, 26-23, í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Aðeins eitt af fimm skotum Snorra Steins í opnum leik fór í markið en hann skoraði hins vegar þrjú mörk úr vítaköstum. Snorri Steinn er markahæstur í frönsku deildinni með 46 mörk.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði eitt mark fyrir Nimes sem er í 6. sæti deildarinnar með átta stig eftir sjö leiki.

Cesson-Rennes, sem frændurnir Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason leika með, gerði jafntefli, 26-26, við Toulouse á heimavelli.

Geir skoraði þrjú mörk úr fimm skotum en Guðmundur Hólmar komst ekki á blað í leiknum.

Cesson-Rennes er með sjö stig í 7. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×