Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir hádramatískan brasilískan kappakstur, þar sem Lewis Hamilton hélt titlbaráttunni á lífi.
Mikil bleyta var á brautinni til að byrja með og ítrekaðar tafir urðu á keppninni vegna árekstra ökumanna við varnarveggi á brautinni. Keppnin tók rúmar þrjár klukkustundir þegar allt er talið með.
Þegar keppnin komst loksins almennilega af stað stal Max Verstappen senunni og tókst að vinna sig upp í þriðja sætið þrátt fyrir arfaslaka keppnisáætlun Red Bull liðsins.
Hamagangur í Brasilíu | Sjáðu uppgjörsþáttinn
Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vann í Brasilíu
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í Brasilíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Max Verstappen varð þriðji með ótrúlegum akstri á Red Bull bílnum.

Lewis Hamilton á ráspól í Brasilíu
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir brasilíska kappaksturinn. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Hamilton fljótastur á báðum föstudagsæfingum
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á báðum föstudagsæfingunum fyrir brasilíska kappaksturinn sem fram fer um helgina.

Rosberg: Ég hugsa ekkert um að ég hafi einhverju að tapa á morgun
Lewis Hamilton á Mercedes náði í sinn sextugasta ráspól í Formúlu 1 í tímatökunni í dag. Hann verður á undan liðsfélaga sínum og keppinaut í heimsmeistarakeppninni þegar keppnin hefst á morgun. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?