Besti leikmaður Real Madrid er ekki Ronaldo eða Bale Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2016 15:15 Modric er lykilmaður hjá Real Madrid. vísir/getty
Gabi, miðjumaður Atletico Madrid, segir að besti leikmaður Real Madrid sé hvorki Cristiano Ronaldo eða Gareth Bale. Atletico tekur á móti Real í borgarslag spænsku höfuborgarinnar á laugardagskvöld og telur að Luka Modric sé mikilvægari Real Madrid en stórstjörnunar Ronaldo og Bale. Modric hefur verið tæpur vegna meiðsla og spilaði af þeim sökum aðeins í síðari hálfleik í leik Króatíu og Íslands í undankeppni HM 2018 á laugardag. Sjálfur segir Króatinn að hann verði klár í slaginn á laugardag en það hefur þó ekki verið staðfest enn. Sjá einnig: Modric var lykilskipting hjá þeim „Madríd er að verja miklu til að koma sínum bestu leikmönnum í stand fyrir leikinn og það segir mikið um hvað þeir ætla sér að gera og hvernig þeir líta á okkur,“ sagði Gabi við spænska fjölmiðla.Luka Modric þakkar Gylfa Þór Sigurðssyni fyrir leikinn.Vísir/Getty„Hvað Modric varðar þá virðast þeir hafa náð að gera sinn besta leikmann leikfæran fyrir leikinn. Hann er eini leikmaður Real Madrid sem lætur liðið spila og gefur því jafnvægi. Við munum reyna að eiga svar við því.“ Annar leikmaður sem er tæpur fyrir helgina er franski sóknarmaðurinn Antoine Griezmann, leikmaður Atletico, en hann meiddist í leik Frakka og Svía á föstudag. Meiðsli hans eru ekki jafn alvarleg og óttast var í fyrstu og stefnir hann að því að ná leiknum. Sjá einnig: Griezmann er ekki fótbrotinn Griezmann hefur skorað sex mörk og lagt upp fjögur til viðbótar í tíu deildarleikjum Atletico Madrid á tímabilinu til þessa. Atletico hefur þó tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum í deildinni og er dottið niður í fjórða sæti deildarinnar. Real Madrid hefur hins vegar ekki enn tapað leik á tímabilinu og á toppnum með 27 stig, sex meira en Atletico. Viðureign Atletico og Real verður sýnd á Stöð 2 Sport á laugardagskvöld klukkan 19.40.
Spænski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Fleiri fréttir Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Sjá meira