Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir það mjög mikilvægt að útgerðir greiði markaðsverð fyrir fiskinn sem sjómenn komi með að landi. „Það í sjálfu sér skiptir ekki máli hver kaupir fiskinn og ekki forgangskrafa okkar að allur fiskur fari á markað, síður en svo. Það er hins vegar skýlaus krafa okkar að útgerðir borgi það verð sem markaðurinn er tilbúinn að greiða fyrir aflann. Þarna eru sjómenn ekki að fá réttan hlut og útgerðin græðir,“ segir Valmundur.

Munurinn á skiptaverði og markaðsverði óslægðs þorsks er aðeins 21 króna á hvert kíló. Þótt þar sé kannski um fáar krónur að ræða getur það numið milljörðum ef skiptaverðið færðist nær markaðsverði, sem myndi þýða hærri laun sjómanna, hærra útsvar fyrir sveitarfélög og meiri skatttekjur ríkisins.
Sjómenn segja það forgangskröfu í samningagerð sinni við útgerðina að menn greiði rétt verð fyrir þann afla sem er veiddur. Sjómenn hafa verið með lausan samning frá árinu 2011 og eru orðnir langþreyttir á tregðu útgerðarmanna til að semja. Ef ekkert gerist mun íslenski flotinn leggjast allur við bryggju þann 10. nóvember næstkomandi.
Valmundur segir það líka vera þannig að markaðurinn vinni oft sem milliliður og að sá afli sem fari á markað fari ekki sjálfkrafa á uppboð. „Svo má líka segja að markaðurinn sé pínulítið skakkur því aflinn þar er ekki boðinn upp heldur segjast menn oft bara vilja kaupa aflann úr þessu skipi á þessu verði án þess að skoða hvað markaðurinn er tilbúinn að greiða fyrir. Því er markaðsverð oft lægra en það ætti að vera,“ segir Valmundur.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu