Hamilton ætlar sér greinilega ekki að gefa eftir í titilbaráttunni. Ræsingarnar hafa þó ekki verið hans sterkasta hlið í ár. Eins hefur ökumaðurinn í öðru sæti unnið síðustu þrjár keppnir í Texas.
Fyrsta lota
Hamilton var fljótastur í fyrstu lotunni, hann var einum tíunda á undan liðsfélaga sínum, Rosberg.
Red Bull bílarnir voru næstir á eftir Mercedes í fyrstu lotu, þeir voru fljótastir á þriðju æfingunni rétt fyrir tímatökuna.
Í fyrstu lotu duttu Manor ökumennirnir út ásamt Felipe Nasr á Sauber, Jenson Button á McLaren, Kevin Magnussen á Renault og Romain Grosjean á Haas. Það voru mikil vonbrigði fyrir Haas liðið að koma ekki báðum bílum upp úr fyrstu lotu á heimavelli.

Mercedes menn gátu farið í gegnum aðra lotuna án þess að nota mýkstu dekk helgarinnar. Þeir settu nógu góðan tíma á mjúku dekkjunum til að komast í gegn. Sama gerði Verstappen á Red Bull.
Ricciardo gerði öfugt við liðsfélaga sinn og var fljótastur í lotunni á ofur-mjúkum dekkjum. Mercedes menn voru rétt á eftir Ricciardo en á harðari dekkjum.
Í annarri lotu féllu úr leik; Fernando Alonso á McLaren, Daniil Kvyat á Toro Rosso, Sergio Perez á Force India, Esteban Gutierrez á Haas, Jolyon Palmer á Renault og Marcus Ericsson á Sauber.
Kvyat skrifaði undir nýjan samning við Toro Rosso á dögunum og verður áfram með liðinu á næsta ári. Þvert á það sem margir töldu eftir slakt gengi hans á tímabilinu.
Þriðja lota
Rosberg klúðraði fyrstu beygjunni í sinni fyrri tilraun í síðustu lotunni. Hamilton byrjaði á því að taka ráspólinn. Munurinn var þó einungis 0,072 sekúndur á Mercedes mönnum.
Rosberg svaraði fyrir sig en Hamilton átti meira inni þegar hann ók sinn lokahring og náði ráspól. Riccardo varð þriðji.
Hér að neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar.