Lewis Hamilton hefur lofað að „gefa allt“ í síðustu fjórar keppnir tímabilsins. Hann ætlar sér að reyna að minnka bilið í liðsfélaga sinn, Nico Rosberg.
Rosberg er með 33 stiga forskot. Hamilton hefur þurft að glíma við blöndu bilanna og eigin mistaka. Hann átti afleidda ræsingu í Japan sem gerði Rosberg allt að því auðvelt fyrir að auka forskot sitt um 10 stig.
Hamilton þarf að vinna allar keppnirnar, en hann þarf auk þess að treysta á að Rosberg nái ekki öðru sæti í þeim öllum.
Hamilton hefur lofað að gefa allt í keppnirnar sem eftir eru.
„Það eru fjórar keppnir eftir og ég ætla að gefa allt í þær,“ sagði Hamilton.
„Þetta snýst bara um að einbeita sér hverri helgi eins og hægt er. Ég mun ekki halda aftur af neinu,“ sagði Hamilton.
„Fyrst er komið að keppninni í Bandaríkjunum - sem er eins og önnur heimakeppni fyrir mig. Ég elska landið, menninguna, fólkið og brautina svo ég get ekki beðið eftir að byrja. Ég á margar góðar minningar héðan. Ég hef unnið þrjár af þeim fjórum keppnum sem haldnar hafi verið hér. Hér tryggði ég mér líka titilinn í fyrra,“ sagði Hamilton.
Hamilton: Ég mun gefa allt í síðustu fjórar keppnirnar

Tengdar fréttir

Nico Hulkenberg fer til Renault
Formúlu 1 lið Renault hefur staðfest að Nico Hulkenberg hafi samið við liðið. Hulkenberg er sem stendur samningsbundinn Force India.

Wolff: Nýjar reglur setja Formúlu 1 á upphafsreit 2017
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes segist telja að Formúla 1 verði "komin aftur á upphafsreit,“ á næsta tímabili, þökk sé nýjum reglum.

Bílskúrinn: Spenna á Suzuka
Nico Rosberg tók risastórt skref í átt á sínum fyrsta heimsmeistaratitili í japanska kappakstrinum um liðna helgi. Lið Rosberg, Mercedes tryggði sér um leið þriðja heimsmeistaratitil sinn í röð.