Viðvörunarbjöllur voru búnar að hringja á Sólheimasandi Una Sighvatsdóttir skrifar 18. september 2016 19:00
Banaslysin urðu með innan við tveggja klukkustunda millibili, hið fyrra á Suðurlandsvegi um ellefuleytið í gærkvöldi og hið síðara á Útnesvegi á Snæfellsnesi klukkan tæplega hálfeitt eftir miðnætti. Þar valt bíll út af veginum og lét íslenskur karlmaður lífið en kona sem einnig var í bílnum var flutt alvarlega slösuð með þyrlu og liggur nú á gjörgæslu Landspítalans. Slysið á Suðurlandsvegi varð á Sólheimasandi skammt frá Pétursey, þar sem nýlega hefur borið á því að menn leggi bílum sínum í vegkantinum í miklum mæli eftir að lokað var fyrir umferð niður að flugfélaflakinu sem þar er orðinn vinsæll ferðamannastaður.Enginn aðstaða er við þjóðveginn yfir Sólheimasanda fyrir bíla en þar leggja ferðamenn í röðum við vegkantinn og ganga niður að flakinu.Var dökkklæddur á miðjum þjóðveginum í niðamyrkri Hinn látni var erlendur ferðamaður í tíu manna hópi. Hann hafði stigið út úr bíl sínum ásamt ferðafélaga og var á þjóðveginum þegar annan bíl bar að á fullum hraða. Kolniðamyrkur var en ökumaður, sem einnig var erlendur ferðamaður, var með háu ljósin á. Hann sá annan vegfarendann, sem var í skærlitum fötum en hinn, sem var dökkklæddur, varð fyrir bílnum og lést samstundis. Ferðafólkið hefur allt fengið áfallahjálp. Þar með eru tólf látnir í umferðinni það sem af er ári, samanborið við sextán í fyrra, en árið 2014 voru banaslysin fjögur talsins. Aukin tíðni alvarlegra slysa í umferðinni síðustu misseri má ekki síst rekja til mikillar fjölgunar erlendra ferðamanna sem þýðir að fleiri eru á ferðinni um vegi landsins. Þjóðvegur 1 hættulegasti staðurinn Mestur er straumurinn um Suðurland og þar hefur lögreglan unnið að því, í samvinnu við sveitarfélögin og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Suðurlandi, að kortleggja staði sem ferðamönnum geti stafað hætta af, bæði á hálendi og í byggð. „Bæði höfum við verið að skoða hálendið, ferðamannastaði og svo það sem er nú hvað hættulegast, sem er bara þjóðvegur eitt,“ segir Víðir Reynisson lögreglufulltrúi á Suðurlandi. „Við erum bara nýbúin að vera að fara yfir nokkra svona staði á Suðurlandinu þar sem safnast saman fólk alveg við veginn þar sem er eitthvað áhugavert og sjá og ekki aðstæður fyrir það í sjálfu sér. Stundum sjáum við það fyrir og vitum hvar eru vinsælustu staðirnir en síðan kemur eitthvað og aðstæður breytast. Eins og í þessu tilfelli, þar sem er lokað þannig að menn geti ekki lengur keyrt niður að þessu flugvélaflaki og þá fara menn að leggja í vegkantinum. Og þetta sá svo sem enginn fyrir.“ Engu að síður hefur verið ljóst um nokkurra vikna skeið að hættuástand gæti myndast á Sólheimasandi þar sem ferðamenn ganga yfir þjóðveg með 90 kílómetra hámarkshraða. Hefði átt að vera búið að grípa til aðgerða? Víðir Reynisson lögreglufulltrúi segir að fyrir 10 dögum hafi verið lögð drögð að aðgerðum til þess að draga úr hámarkshraða og skapa betri aðstöðu á Sólheimasandi, til að forða slysi.Hefðu viljað vera búin að lækka hámarkshraða „Auðvitað í dag situr maður og hugsar, af hverju var maður ekki búinn að gera eitthvað meira í þessu? Við skoðuðum þessa staði fyrir 10 dögum síðan og eitt af því sem við vildum gjarnan gera var að lækka hámarkshraða þarna. En við vorum ekki búnir að vinna lengra með það, þannig að maður situr svolítið uppi með það í dag," segir Víðir. Eftir banaslysið þar í gær segist hann búast fastlega við því að málið fari efst á forgangslista hjá Vegagerðinni. Hann bendir hinsvegar á að þótt bregðast verði sem fyrst við því sem hægt sé að gera strax verði líka að gera langtímaáætlun, enda ekkert útlit fyrir að lát verði á umferðarþunganum. „Við þurfum að hugsa þetta í einni heild. Það eru engar töfralausnir. Við erum að horfa á ákveðna staði þar sem hægt er að gera eitthvað varðandi löggæsluna, vegakerfið sjálft, sjúkraflutninga og annað. Vegamálastjóri er nýbúinn að benda á þá fjármuni sem vantar í viðhald vega og þær lagfæringar sem þarf að gera. Síðan eru auðvitað svona staðir sem þarf að hugsa sérstaklega hvað þarf að gera til að taka á móti ferðamönnum.“
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira