Torsóttur Gróttusigur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. september 2016 21:09 Finnur Ingi Stefánsson skoraði níu mörk fyrir Gróttu í kvöld. vísir/vilhelm
Grótta vann torsóttan tveggja marka sigur, 28-26, á Fram í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Mikilvægur sigur hjá Seltirningum en Fram, sem var spáð neðsta sæti deildarinnar, spilaði vel á löngum köflum í kvöld og var nálægt því að ná í stig. Finnur Ingi Stefánsson var markahæstur í liði Gróttu með níu mörk en Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði átta mörk fyrir Fram. Grótta komst í 2-1 eftir sex mínútur en það var í eina skiptið sem liðið leiddi í fyrri hálfleiknum. Strákarnir úr Safamýrinni voru með fín tök á leiknum í fyrri hálfleik og náðu mest fjögurra marka forskoti, 6-10. Í hálfleik munaði svo tveimur mörkum á liðunum, 11-13. Seltirningar byrjuðu seinni hálfleikinn af gríðarlegum krafti og skoraði fyrstu sjö mörk hans. Um miðjan seinni hálfleik munaði fjórum mörkum á liðunum, 20-15, en þá kviknaði aftur á gestunum sem skoruðu sjö mörk í röð og náðu tveggja marka forystu, 20-22. Lokamínúturnar voru æsispennandi en Gróttumenn sigldu á endanum framúr og tryggðu sér stigin tvö. Lokatölur 28-26, Gróttu í vil.Mörk Gróttu: Finnur Ingi Stefánsson 9/6, Nökkvi Dan Elliðason 5, Júlíus Þórir Stefánsson 4, Vilhjálmur Geir Hauksson 4, Leonharð Þorgeir Harðarson 3, Þráinn Orri Jónsson 3.Mörk Fram: Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 8/1, Arnar Birkir Hálfdánarson 5, Sigurður Örn Þorsteinsson 4, Valdimar Sigurðsson 3, Andri Þór Helgason 2/1, Bjartur Guðmundsson 2, Svanur Vilhjálmsson 1, Þorgeir Bjarki Davíðsson 1/1.Upplýsingar um markaskorara og gang leiksins eru fengnar frá mbl.is.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Selfoss 25-32 | Nýliðarnir byrja af krafti Selfyssingar sóttu tvö stig í Mosfellsbæinn í kvöld en nýliðarnir sýndu klærnar og leiddu lengst af í leiknum og fögnuðu að lokum verðskulduðum sigri. 8. september 2016 22:15 Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Selfoss 25-32 | Nýliðarnir byrja af krafti Selfyssingar sóttu tvö stig í Mosfellsbæinn í kvöld en nýliðarnir sýndu klærnar og leiddu lengst af í leiknum og fögnuðu að lokum verðskulduðum sigri. 8. september 2016 22:15