
„Hér í Ármúla er margskonar þjónusta sem okkur langar að tengja saman og búa til heildræna þjónustu í heilbrigði og vellíðan. Við erum til að mynda í samstarfi við sjúkraþjálfunina Gáska, hjá okkur starfar markþjálfi og þá erum við í tengslum við læknana í Klínikinni hér í húsinu og Bistró Hótel Íslandi. Hér er því hægt að fá hollan og góðan mat fyrir og eftir æfingu,“ útskýrir Gígja.

„Hér er hóptímasalur þar sem fram fara fjölbreytt námskeið og úrval opinna tíma þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Öll námskeið eru kennd af sérmenntuðu fólki og við fléttum inn í þau sérþekkingu annarra sérfræðinga, svo sem lækna. Öll aðstaða er ný og glæsileg og hóptímasalurinn rúmar ekki marga svo þjónustan verður persónulegri og hver og einn viðskiptavinur nýtur sín.”
Fyrirlestrar
Haldnir verða fyrirlestrar vikulega í haust. Meðal fyrirlesara eru sálfræðingur, læknar, sjúkraþjálfarar, og næringarfræðingur. Á morgun flytur Borghildur Sverrisdóttir fyrirlesturinn Hamingjan og hugarfarið klukkan 17.45. Hægt er að fylgjast með fyrirlestraframboði á Facebooksíðu okkar og á www.heilsaogspa.is

„Í Spa-inu er fyrsta flokks heilsulind með sauna, heitum potti, köldum potti og æfingalaug þar sem hægt er að gera æfingar eða fljóta undir dansandi norðurljósasýningu og allir gestir fá handklæði,” útskýrir Gígja. “Við tökum bæði á móti einstaklingum og hópum innan og utan opnunartíma og bjóðum upp á nudd, nálastungur, cupping. Til að toppa heimsóknina býður snyrtistofan Fegurð og Spa upp á mikið úrval snyrtimeðferða þ.a það ættu allir að koma endurnærðir frá okkur.”
Opinn dagur á morgun
„Á morgun miðvikudaginn 24.ágúst milli 16 og 19 verður opinn dagur hjá okkur þar sem gestir geta kynnt sér þjónustuna og aðstöðuna og nýtt sér þau fjölmörgu tilboð sem í boði verða. Allir velkomnir."

Lokað átta vikna námskeið þar sem áhersla er lögð á að efla heilsuna með skemmtilegum og fjölbreyttum æfingum, fræðslu og hvatningu. Hver þáttakandi gerir eins mikið og hann treystir sér til Unnið verður með styrktar-, þol og liðleikaæfingar og hver tími endar á góðum teygjum eða slökun.
- Kennari: Anna Hlín Sverrisdóttir sjúkraþjálfari.
- Fræðsla í höndum: Ragnars Freys Ingvarssonar (læknirinn í eldhúsinu), Hjálmars Þorsteinssonar bæklunarlæknis og Rósu Aðalsteinsdóttur heilsumarkþjálfa.
- Verð: 34.900 kr.

Lokað átta vikna námskeið fyrir stífa og stirða þar sem áhersla er lögð á að að styrkja bak- og kviðvöðva og vinna út frá eðlilegu hreyfimynstri hryggjarins og liðamóta með heilsueflandi jógaæfingum. Unnið með líkama, huga og öndun í heitum sal og tímarnir enda á góðri slökun.
- Kennari: Ása Sóley Svavarsdóttir jógakennari
- Fræðsla í höndum: Hjálmars Þorsteinssonar bæklunarlæknis, Rósu Aðalsteinsdóttur heilsumarkþjálfa, Aðalsteins Arnarsonar skurðlæknis og sjúkraþjálfurum frá Gáska.
- Verð: 34.900 kr

Lokað átta vikna námskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna. Farið verður í grunnstöðurnar með mismunandi útfærslum. Áhersla á mýkt og meðvitund þar sem jógastöðurnar flæða úr einni yfir í aðra í takt við öndun. Allir tímar enda á góðri slökun í lokin.
- Kennari: Lovísa Rut Ólafsdóttir jógakennari
- Fræðsla í höndum: Rósu Aðalsteinsdóttur markþjálfa, Borghildar Sverrisdóttir sálfræðings og Heiðdísar Steinsdóttur snyrtifræðimeistara og eiganda Fegurðar & Spa snyrtistofu í Ármúla 9.
- Fyrir hverja: Tilvalið fyrir konur 40 + sem vilja dekra við sig í endurnærandi umhverfi.
- Verð: 34.900 kr

- Tveir fastir tímar á viku
- Markþjálfun í upphafi námskeiðs þar sem einstaklingsmiðuð markmið verða sett fyrir komandi vikur.
- Lokaður hópur á Facebook
- Handklæði á staðnum
- Aðgangur í fallegt Spa (sauna, heitur pottur, kaldur pottur, æfinga-/flotlaug)
- 15% afsláttur af nuddi hjá Heilsu og Spa á meðan á námskeiði stendur
- 15% afsláttur af Sweet cheeks jarðaberja og rababara andlitsmeðferð hjá Fegurð og Spa á meðan á námskeiði stendur.
- Aðgangur í alla opna tíma og tækjasal
- Frítt á fjölmarga áhugaverða fyrirlestra í Heilsu og Spa (nema Röggu nagla 21.sept)
- Heilsufarsmælingar frá hjúkrunarfræðingum Karítas
- Athugið hámark 16 manns á hverju námskeiði.
- Skráning hjá heilsaogspa@heilsaogspa.is eða í síma 595-7007
