Aron Snær Júlíusson úr GKG er með tveggja högga forskot að loknum fyrsta keppnisdeginum á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni en hann setti nýtt glæsilegt vallarmet í kvöld.
Aron er með tveggja högga forskot á Birgi Leif Hafþórsson úr GKG og Vikar Jónasson úr Keili. Þórður Rafn Gissurarson, Íslandsmeistari frá árinu 2015 lék á pari vallar, og það er útlit fyrir hörkuspennandi keppni á Jaðarsvelli allt fram á sunnudag þegar keppni lýkur.
Golfsamband Íslands var með viðtal við þá Aron Snær Júlíusson og Birgi Leif Hafþórsson á heimsíðu sinni en þau má sjá hér fyrir neðan.
Aron Snær: Ég ætla mér að vera í toppbaráttunni á þessu móti
„Þetta var gott í dag, ég sló eitt lélegt dræv á hringnum og bjargaði þar skolla. Annars var þetta gott golf, ég vippaði í fyrir erni á 15. af um 30 metra færi. Ég ætla mér að vera í toppbaráttunni á þessu móti og þessi hringur kemur mér ekkert á óvart því ég var að slá vel fyrir þetta mót. Jaðarsvöllur er geggjaður, frábærlega vel hannaður og ég er ánægður með völlinn,“ sagði Aron Snær Júlíusson úr GKG við golf.is
Birgir Leifur: Ég hefði alveg getað gert aðeins meira
„Ég var stöðugur í mínu golfi og sló mörg góð golfhögg. Ég var sáttur við hringinn, ég fékk fugl á 2. og 3., það er gott að fá fugl á 3. við þessar aðstæður sem voru í dag í mótvindi. Það var gott að byrja vel og ég hefði alveg getað gert aðeins meira en ég missti aðeins dampinn. Ég hélt mér inni með góðum vippum. Á 15. gerði ég mistök og þrípúttaði, sem er ekki gott á þessum velli, þar sem maður þarf að nýta sér vel par 5 holurnar,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson úr GJG sem er sexfaldur Íslandsmeistari í golfi við golf.is
Birgir leikur í ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana með Haraldi Franklín Magnús og Guðmundi Ágústi Kristjánssyni en þeir voru báðir í A-landsliði karla sem Birgir Leifur stýrði á Evrópumótinu fyrir tveimur vikum. „Það er skrítið að vera að keppa við þessa stráka í dag en þeir halda mér á tánum og ungum í anda. Þeir eru góðir vinir mínir og mér leiðist ekki þegar ég næ að slá upphafshöggin lengra en þeir,“ bætti Birgir við í samtalinu við golf.is.
Aron Snær: Þessi hringur kemur mér ekkert á óvart

Tengdar fréttir

Sögubækurnar bíða Birgis Leifs
Birgi Leifi Hafþórssyni og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur er spáð Íslandsmeistaratitlinum í höggleik en mótið hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. Vinni Birgir verður hann sigursælastur í sögunni.

Ólafía Þórunn: Ég er alltaf að læra betur á völlinn
Það stefnir í æsispennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í dag á Jaðarsvelli á Akureyri en það munar aðeins tveimur höggum á efstu þremur konunum eftir fyrstu átján holurnar.

Ólafía Þórunn er efst hjá konunum en á þó bara eitt högg
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með eitt högg í forystu eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer þessa dagana á Jaðarsvelli á Akureyri.

Frábært vallarmet hjá Aroni Snæ og tveggja högga forysta eftir fyrsta dag
Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæ er með tveggja högga forystu í karlaflokki eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri.