Fimm jöfnuðu sólarhringsgamalt vallarmet og Axel er í forystu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2016 17:51 Axel Bóasson. Vísir/GSÍ
Axel Bóasson úr Keili er með eins höggs forskot eftir annan daginn á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram þessa dagana á á Jaðarsvelli á Akureyri. Axel Bóasson hefur leikið tvo fyrstu dagana á fjórum höggum undir pari og er með eitt högg í forskot á þá Rúnar Arnórsson úr GK, Birgi Leif Hafþórsson úr GKG og Gísla Sveinbergsson úr GK sem allir hafa leikið fyrstu 36 holurnar á þremur höggum undir pari. Axel Bóasson var einn af fimm kylfingum sem jöfnuðu vallarmet Arons Snæs Júlíussonar frá því í gær þegar hann lék á 67 höggum og náði tveggja stiga forystu. Hinir sem léku líka á 67 höggum í dag og jöfnuðu met Arons eru þeir Rúnar Arnórsson, Gísli Sveinbergsson, Andri Már Óskarsson og Arnór Ingi Finnbjörnsson. Aron Snær Júlíusson náði ekki alveg að fylgja gærdeginum eftir og þurfti sex fleiri högg til að klára í dag. Hann er samt í 5. til 8. sæti með þeim Andra Má Óskarssyni úr GHR og Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR. Axel Bóasson var reyndar á parinu eftir fyrri hringinn í dag en þá fór strákurinn í stöð og fékk fjóra fugla á síðustu níu holunum. Axel náði alls sex fuglum á hringnum sem er frábær árangur. Birgir Leifur Hafþórsson er í 2. til 4. sæti en hann er eini kylfingurinn sem hefur leikið báða hringina á undir pari. Birgir Leifur var á einu höggi undir pari í dag en á tveimur höggum undir pari í gær.Staðan í meistaraflokki karla eftir tvo daga: 1. Axel Bóasson, GK -4 2. Rúnar Arnórsson, GK -3 2. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG -3 2. Gísli Sveinbergsson, GK -3 5. Andri Már Óskarsson, GHR -2 5. Aron Snær Júlíusson, GKG -2 5. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR -2 8. Bjarki Pétursson, GB -1 9. Kristján Benedikt Sveinsson, GA Par 9. Aron Bjarki Bergsson, GKG Par
Golf Tengdar fréttir Sögubækurnar bíða Birgis Leifs Birgi Leifi Hafþórssyni og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur er spáð Íslandsmeistaratitlinum í höggleik en mótið hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. Vinni Birgir verður hann sigursælastur í sögunni. 21. júlí 2016 06:00 Ólafía jafnaði vallarmetið á Jaðarsvelli og er með tveggja högga forskot Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með tveggja högg forskot þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í golfi á Jaðarsvelli á Akureyri. 22. júlí 2016 14:59 Ólafía Þórunn: Ég er alltaf að læra betur á völlinn Það stefnir í æsispennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í dag á Jaðarsvelli á Akureyri en það munar aðeins tveimur höggum á efstu þremur konunum eftir fyrstu átján holurnar. 21. júlí 2016 19:15 Ólafía Þórunn er efst hjá konunum en á þó bara eitt högg Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með eitt högg í forystu eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer þessa dagana á Jaðarsvelli á Akureyri. 21. júlí 2016 19:01 Frábært vallarmet hjá Aroni Snæ og tveggja högga forysta eftir fyrsta dag Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæ er með tveggja högga forystu í karlaflokki eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri. 21. júlí 2016 21:27 Aron Snær: Þessi hringur kemur mér ekkert á óvart Aron Snær Júlíusson úr GKG er með tveggja högga forskot að loknum fyrsta keppnisdeginum á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni en hann setti nýtt glæsilegt vallarmet í kvöld. 21. júlí 2016 21:39 Mest lesið Keppast um titilinn Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Rændu lið sitt titilfögnuði og eiga yfir höfði sér lífstíðarbann Fótbolti Allt brjálað í lokin en titillinn blasir við Skyttunum Enski boltinn Uppgjörið: KA - ÍBV 2-0 | Sjálfsmark sökkti gestunum í lok leiks Íslenski boltinn „Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Handbolti ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns Handbolti Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Handbolti Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Besta byrjun KR í efstu deild síðan árið 1959 Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tveir Íslendingar á meðal fimm efstu í Danmörku Drifkrafturinn hjá McIlroy meiri eftir tímamótasigur Gunnlaugur mun aftur keppa á sterkasta áhugamannamóti í heimi DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Landsmót í golfhermi til lykta leitt á Sýn Sport Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Heiða Rakel vann háskólamót Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ McIlroy varði Masters-titilinn Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Sögulegt forskot McIlroy að gufa upp Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Magnaður McIlroy með stærsta forskot sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Sjá meira
Sögubækurnar bíða Birgis Leifs Birgi Leifi Hafþórssyni og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur er spáð Íslandsmeistaratitlinum í höggleik en mótið hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. Vinni Birgir verður hann sigursælastur í sögunni. 21. júlí 2016 06:00
Ólafía jafnaði vallarmetið á Jaðarsvelli og er með tveggja högga forskot Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með tveggja högg forskot þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í golfi á Jaðarsvelli á Akureyri. 22. júlí 2016 14:59
Ólafía Þórunn: Ég er alltaf að læra betur á völlinn Það stefnir í æsispennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í dag á Jaðarsvelli á Akureyri en það munar aðeins tveimur höggum á efstu þremur konunum eftir fyrstu átján holurnar. 21. júlí 2016 19:15
Ólafía Þórunn er efst hjá konunum en á þó bara eitt högg Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með eitt högg í forystu eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer þessa dagana á Jaðarsvelli á Akureyri. 21. júlí 2016 19:01
Frábært vallarmet hjá Aroni Snæ og tveggja högga forysta eftir fyrsta dag Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæ er með tveggja högga forystu í karlaflokki eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri. 21. júlí 2016 21:27
Aron Snær: Þessi hringur kemur mér ekkert á óvart Aron Snær Júlíusson úr GKG er með tveggja högga forskot að loknum fyrsta keppnisdeginum á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni en hann setti nýtt glæsilegt vallarmet í kvöld. 21. júlí 2016 21:39