Vaxtarverkir eru óhjákvæmilegir og viðbúið að fólk á framandi slóðum bregðist við aðstæðum á frumlegan hátt. Og þá hlæja hinir innfæddu dátt. Vísir ætlar í tilefni helgarinnar að tæpa á nokkrum furðufréttum af gjörðum ferðamanna sem stungið hafa í stúf. Upprifjunin er langt í frá tæmandi en atvikin lýsa kostulegum, grátbroslegum og jafnvel óhugnanlegum uppákomum.
Veifuðu sprellanum framan í árrisula Egilsstaðabúa
Ýmsir lesendur Vísis ráku upp stór augu í dag þegar þeir sáu greint frá atferli Frakka nokkra, sem voru býsna frjálslegir í fasi. Þeir gerðu sér lítið fyrir og spúluðu sig sjálfa á bílaþvottastöð á Egilsstöðum.

Nakinn sonur í kuldakasti og sjálfheldu
Frétt frá í fyrra, í september nánar tiltekið, vakti furðu og jafnvel óhug. Víkur sögunni til Þingvalla en þar var Einar Ásgeir Sæmundsson, fræðslufulltrúi Þjóðgarðsins á Þingvöllum, á ferð einu sinni sem oftar, við Flosagjá, og heyrði þá hljóð sem benti til þess að eitthvað hefði dottið í gjánna.

„Þegar ég kom þarna að var greinilegt að foreldrarnir áttuðu sig ekki á því hve kalt vatnið væri og aðstæður alvarlegar,“ sagði Einar Ásgeir en gjáin er um sex til sjö metra há og mjög djúp. „Hann fékk strax algert kuldasjokk og synti beint að klettavegnum og prílaði úr vatninu og var í sjokki og sjálfheldu á lítilli syllu,“ segir Einar Ásgeir.
Meðan á því stóð var fjölskyldan í hláturskasti og hvatti son sinn áfram. Þarna lá við að illa færi.
Am I doing something wrong?
Annað atvik sem er skondið, en alvarlegt í senn, er þegar Arngrímur Hermannsson hjá fyrirtækinu Ice Explorer var á Langjökli og hitti þar fyrir fimm manna fjölskyldu sem var í bíltúr á jöklinum. Þetta var í ágúst 2014.

„Am I doing something wrong?“ spurði hinn þá á móti. Arngrímur reyndi að útskýra fyrir ferðamönnunum að þarna væru hættulegar aðstæður sem þeir væru í þann mund að koma sér í.
Skítabisness
Margir hafa fengið nóg af fjölda fregna af afleiðingum þess að salernisaðstöðu fyrir ferðamenn er ábótavant á Íslandi. Þeim sem starfa innan greinarinnar er beinlínis orðin það raun að lesa slíkar fréttir, finnst sennilega þetta vont uppá alla ímynd og hefur það gengið svo langt að í umræðuhópi á Facebook, þar sem ferðamál eru rædd, Baklandi ferðaþjónustunnar, hefur slík umræða verið gerð útlæg.

Um tvo stálpaða krakka var að ræða en móðir þeirra stóð yfir þeim og skeindi. Hafnarstéttin er fyrir þá sem ekki þekkja til á Húsavík gata við höfnina á Húsavík, samkomustaður Húsvíkinga og ekki úr alfaraleið.
„Ég var svo kjaftstopp en spurði þau hvort þau notuðu ekki klósett? Þá varð hún voða flóttaleg og spurði hvort að það væru yfirhöfuð einhver klósett hérna. Ég svaraði því að hún gæti fundið klósett hérna út um allt.“ Konurnar reyndu að koma fólkinu í skilning um að þetta væri mjög dónaleg hegðun. „Hún sagði að þetta væri í lagi af því að fuglarnir borða þetta,“ segir Kristín Þorbergsdóttir forviða.
Að gefa skít í þjóðskáldin
Jú, kúk og pissbandarar bera ekki vott um þróaða kímnigáfu. En, svona er þetta nú samt. Þeir sem búa á landsbyggðinni og við vinsæla ferðamannastaði segjast þurfa að vaða mannaskítinn í ökkla í öllum lautum, klósettpappír er út um allt.

„Þetta er vanhelgun og vanvirðing við allt og alla. Svona hagar siðmenntað fólk sér ekki,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og formaður Þingvallanefndar, um áðurnefnda stöðu við þjóðargrafreitinn.
Að tjalda á miðjum vegi
Þá var ýmsum brugðið við fréttir sem birtust í síðasta mánuði, af ferðalöngum sem gerðu sér lítið fyrir og tjölduðu á miðjum vegi. Að því er virtist.

En, líkt og mynd segir meira en þúsund orð, þá má blekkja með linsunni. Seinna kom á daginn að bíllinn og tjaldið voru í raun á útskotsvegi við Vestfjarðarveg, en tjaldstæðið hlýtur að teljast frumlegt eftir sem áður, þó ekki hafi það valdið hættu.
Noel okkar allra
Vísir greindi frá ævintýrum Noels Santillian, 28 ára gömlum Bandaríkjamanni frá New Jersey, í upphafi þessa árs. Hann lenti óvart á Siglufirði en átti pantað hótelherbergi í Reykjavík. Þar skipti eitt lítið „r“ sköpum. Santillian átti pantað hótelherbergi á Hótel Frón við Laugaveg. Hann stimplaði inn á GPS-tæki bílsins þær upplýsingar sem fyrir lágu, Hótel Frón við LaugaRveg og hlýddi tækinu.

Þórsmörk í Borgarfirði
Vísir hefur einnig sagt af öðrum ferðamönnum sem villtust af leið. Þetta var í maí á þessu ári. Sérlega skemmtileg er frásögnin af bandaríska parinu sem ætlaði sér að upplifa náttúruparadísina Þórsmörk – einstök náttúruperla á heimsvísu.

Allt er gott sem endar vel, bandaríska parinu var tekið með kostum og kynjum þegar þau bönkuðu uppá og var þeim boðið í grillveislu og allir skemmtu sér konunglega.