Royal Bank of Scotland mun á næstu misserum skera niður um níu hundruð störf í Bretlandi, samtals verður því skorið niður um fimm prósent af heildarfjölda starfsmanna. Reuters greinir frá þessu.
Störfin sem um ræðir eru meðal annars á sviði upplýsingatæknis. RBS, sem er að 73 prósent hluta í eigu breska ríkisins, er í miðju endurskipulagningaferli til að draga úr kostnaði og er niðurskurðurinn liður í því.
Forsvarsmenn bankans vildu ekki staðfesta heildarfjölda uppsagna innan bankans en staðfestu að niðurskurður væri yfirvofandi og að bankinn vildi einbeita sér að viðskiptastarfsemi í Bretlandi.
Á síðastliðnu ári hafa evrópskir og bandarískir bankar tilkynnt um uppsagnir tugi þúsunda starfsmanna.
RBS sker niður 900 störf

Tengdar fréttir

RBS segir upp þúsund starfsmönnum
Bankinn mun vélvæða 550 störf og flytja þrjú hundruð störf til Indlands til að draga úr launakostnaði.

Rúmlega 140 þúsund uppsagnir á einu ári
Stærstu bankar Evrópu og Bandaríkjanna tilkynntu um fjölda uppsagna á síðastliðnu ári. Síðast var tilkynnt að leggja ætti niður þúsund stöðugildi hjá RBS á komandi misserum.