Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta mæta Makedóníu í sjötta leik liðsins í undankeppni EM 2017 á Laugardalsvelli í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Umræðan hefur verið þannig að farseðilinn kvennaliðsins á EM 2017 í Hollandi verði tryggður með sigri í kvöld en svo er ekki. Frá þessu er greint á heimasíðu KSÍ.
Efsta þjóðin í hverjum riðli tryggir sér farseðilinn beint á Evrópumótið í Hollandi ásamt sex af átta liðum sem hafna í öðru sæti. Þær tvær þjóðir sem eftir verða í öðru sæti mætast í umspilsleikjum um sæti á EM.
Þegar reiknað er út hvaða þjóðir eru með bestan árangur í öðru sæti eru bara teknir með í reikninginn leikir gegn þjóðunum í fyrsta, þriðja og fjórða sæti. Leikir gegn neðsta liðinu í riðlinum eru því ekki teknir inn í jöfnuna.
Ísland er í frábærri stöðu í riðlinum eftir glæsilegan sigur á Skotum í síðustu viku. Stelpurnar okkar eru með 15 stig af 15 mögulegum, 21 mark skorað og ekkert fengið á sig.
Stelpurnar okkar verða með 18 stig vinnist sigur á Makedóníu í kvöld og verða þá tveir leikir eftir. Bíða þarf eftir úrslitum leikjum í öðrum riðlum til að endanlega sé hægt að bóka stelpurnar til Hollands en það verður ekki í kvöld.
Stelpurnar komast ekki á EM með sigri í kvöld

Tengdar fréttir

Skotarnir áttu aldrei séns eftir að stelpurnar okkar sáu þetta myndband
Íslenska kvennalandsliðið hefur sjaldan komið eins vel undirbúið til leiks og örugglega aldrei spilað jafnvel í jafnmikilvægum leik og í Skotlandi á dögum.