KR tapaði ekki bara á heimavelli í bikarnum í kvöld heldur féllu KR-ingar úr keppni í 32 liða úrslitum í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Fréttirnar úr Vesturbænum hafa að sjálfsögðu kallað á sterk viðbrögð úr Twitter-heiminum enda bjóst líklega enginn við þessum úrslitum nema kannski Selfyssingar.
Hér fyrir neðan má sjá nokkur af þessum fjölmörgum athugasemdum knattspyrnuáhugafólks á Twitter eftir að flautað var af í Frostaskjólinu.
Ekki kominn júní og KR úr leik í öllum keppnum! Hefur það gerst áður? #pepsi365 #borgunarbikarinn
— Garðar Gunnar (@gardargunnar) May 25, 2016
Jæja Bjarni Guðjóns, þá ertu allavega búinn að áorka eitthvað hja KR. #fotboltinet https://t.co/UgW3jXsJPP
— Birgir Þór Björnsson (@birgirtho) May 25, 2016
Bæbæ Bjarni. Vel spilað leikmenn kr, sama taktík og #moyesout #selfoss #borgunarbikarinn #borgun
— Hugi Halldórsson (@hugihall) May 25, 2016
Haha vel gert @MflKkSelfoss !
— Marvin Vald (@MarvinVald) May 25, 2016
Skemmtilegast í heimi að vinna KR.
Óvæntustu úrslit í áraraðir.
Geðveikt.#fotbolti
Gruna að þessi vonbrigði í kvöld kveiki á KR liðinu í pepsi. Enginn eins svekktur og leikmenn/þjalfarar KR í kvöld. #fotbolti
— Teitur Örlygsson (@teitur11) May 25, 2016
1 - Í fyrsta sinn dettur KR úr leik í 32-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ [21 leikur í 32 liða úrslitum alls].
— KR Tölfræði (@KRstats) May 25, 2016
Er Selfoss að vinna KR eða er mig að dreyma. Misgóðir draumar maður. Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) May 25, 2016
Núna er það stóra spurningin. Verður Bjarni rekinn fyrir eða eftir hádegi á morgun? #lol #fotboltinet
— Kari Freyr Doddason (@Doddason) May 25, 2016
Nú fer að koma yfirlýsing úr Frostaskjólinu um "fullt traust" og svo verður BG rekinn á sunnudagskvöld - nú eða mánudagsmorgun #fotboltinet
— Gudmundur Brynjolfss (@GBRYNJOLFSSON) May 25, 2016
Getur allt gerst í bikarnum. Risarnir úr leik. #Völsungur #KR
— Henry Birgir (@henrybirgir) May 25, 2016
Bjarni Guðjóns hlýtur að fá reisupassann.. #fotboltinet
— Óskar Smári (@oskarsmari7) May 25, 2016
Mómentið þegar maður fattar að Víðir Garði komst lengra í bikarnum en KR @smarason1 þarf "stórveldið" að kaupa þig heim? #fotboltinet #vidir
— Ingimundur Guðjónsso (@Ingimundur4) May 25, 2016
Segir mikið um KR liðið þegar Bóas, stuðningsmaður KR nr. 1, fer frekar upp á skaga til að horfa og styðja KV
— Guðmundur Sigurðsson (@gummisig54) May 25, 2016
Vitið þið bara hvað - Selfoss vann KR í bikar? Hversu magnað er þetta #borgun365 #krselfoss
— KristinTraustadottir (@traustadottir) May 25, 2016