„Það á eftir að herða nokkrar skrúfur“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. maí 2016 21:00 Jóhann Kristinn Gunnarsson, Þjálfari Þórs/KA var að vonum svekktur eftir 4-0 tap gegn Stjörnunni í fyrstu umferð Pepsi deildar kvenna í kvöld. Mynd/Daníel „
Það á eftir að herða nokkrar skrúfur,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA sem tapaði 4-0 gegn Stjörnunni í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna sem hófst í kvöld. Lið Þórs/KA hefur tekið nokkrum breytingum frá síðasta tímabili þegar liðið endaði í fjórða sæti deilarinnar. Reynsluboltar á borð við Gígju Valgerði Halldórsdóttur eru horfnir á brott og þá sleit Ágústa Kristinsdóttir krossbönd skömmu fyrir tímabilið. Þór/KA hefur fengið til liðs sig við þrjár landsliðskonur frá Mexíkó til þess að fylla í skarðið og léku þær allar sinn fyrsta leik í kvöld. „Það er margt að gerast hjá okkur og leikmennirnir eru að kynnast hverjum öðrum, bæði inn á vellinum sem og utan. Við verðum klárar í næsta leik,“ segir Jóhann sem er vongóður um að liðinu takist að blanda sér í toppbaráttuna í Pepsi-deild kvenna sem hefur ekki verið jafn sterk í þó nokkurn tíma með komu leikmanna eins og Margréti Láru Viðarsdóttur til landsins á nýjan leik. „Það verður allavega ekki hægt að setja neitt á Lengjuna fyrir leikina í sumar. Á toppnum verða Stjarnan, Valur, Breiðablik og svo munu ÍBV, Fylkir og við blanda okkur í þetta. Liðin eiga eftir að taka stig af hverju öðru,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA en liðinu er spáð 5. sæti af þjálfurum og fyrirliðum.Lesa má umfjöllun og viðtöl eftir leik Stjörnunnar og Þórs/KA í kvöld hér.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Fótbolti Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn Fótbolti Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Fótbolti Dagskráin í dag: Fyrsti risaleikur tímabilsins Sport „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Fótbolti Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Fáar spilað leik á þessum velli „Vona að við séum búnar að læra nægilega mikið og förum að vinna“ „Allt er þegar þrennt er“ Allar tilfinningarnar í gangi Sjáðu þáttinn um fyrsta N1-mót kvenna: Smá stress, snitsel og Sandra María skrifaði á skó Sjáðu dramtíkina á Króknum í gær: Aftur fengu Þróttarakonur rautt spjald „Galið og fáránlegt“ ÍBV búið að tryggja sér sæti í Bestu deildinni Uppgjörið: Tindastóll - Þróttur | Misstu Mist af velli og fengu á sig jöfnunarmark Sjáðu eitt af mörkum ársins og þrennu Jordyn Rhodes Halldór framlengir til ársins 2028 við Breiðablik Guðmundur í grænt Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Valur - Stjarnan 4-2 | Rhodes með þrennu í seinni hálfleik Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Hártog er harðbannað og ekki skylda að vera með tagl Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu KR fær þýskan varnarmann Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Sjáðu frábærar afgreiðslur Sigurðar Bjarts, vítavörslur Árna og endurkomu KR-inga „Dóri verður að hætta þessu væli“ „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Sjá meira