Ferrari sýnir mátt sinn á föstudagsæfingum Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 13. maí 2016 22:27 Vettel sýndi mátt Ferrari í dag. Vísir/Getty
Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir spænska Formúlu 1 kappaksturinn. Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á seinni æfingunni. Ferrari virðist nær Mercedes en áður á tímabilinu. Vettel var fljótastur á fyrri æfingunni, liðsfélagi hans Kimi Raikkonen var annar. Mercedes setti mjúku dekkin ekki undir. Rosberg og Lewis Hamilton voru rúmlega hálfri sekúndu á eftir Vettel, á milli-hörðu dekkjunum. Daniel Ricciardo stóðst pressuna frá nýja liðsfélaganum, Max Verstappen. Ricciardo var tveimur tíundu á undan Verstappen. Sjá einnig: Kvyat tapar sæti sínu til Verstappen. Dagarnir lagast ekki mikið hjá Daniil Kvyat sem var færður frá Red Bull til Toro Rosso fyrir þessa keppni. Hann var um hálfri sekúndu hægari en Carlos Sainz, liðsfélagi hans hjá Toro Rosso. Heimamaðurinn, Carlos Sainz hafði ýmislegt að sanna í dag. Hann kom skilaboðunum alla leið.Vísir/GettyRosberg kom Mercedes svo á toppinn á seinni æfingunni. Raikkonen var þó ekki langt undan á Ferrari bílnum. Hamilton var þriðji og Vettel fjórði. Sainz bætti um betur frá fyrri æfingunni og var fljótari en báðir Red Bull bílarnir og Kvyat. Sainz varð fimmti rúmlega sekúndu á eftir Rosberg. Hann vill greinilega sýna að hann hefði átt á fá tækifæri hjá Red Bull í stað Verstappen. Jolyon Palmer og Esteban Ocon á Renault, lentu báðir í því að sprengja dekk. Ocon er varaökumaður Renault og var að fá að spreyta sig á fyrri æfingunni í bíl Kevin Magnussen. Magnussen var í bílnum á seinni æfingunni. Bein útsending frá tímatökunni á Spáni hefst klukkan 11:50 á morgun á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 11:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.Hér fyrir neðan má sjá úrslit æfinganna.
Formúla Tengdar fréttir Forseti Ferrari ætlast til þess að liðið vinni spænska kappaksturinn Sergio Marchionne ætlast til þess af Ferrari liðinu að það fari að snúa við blaðinu og sigra Mercedes. Hann vill að liðið byrji á að vinna spænska kappaksturinn um helgina. 12. maí 2016 23:45 Bílskúrinn: Rosberg einmana í Rússlandi Nico Rosberg á Mercedes vann sjöttu keppnina í röð í Rússlandi á sunnudag. Hvað var að frétta hjá Lewis Hamilton, hvað var Daniil Kvyat að spá? 4. maí 2016 16:45 Hamilton vill ekki sjá samsæriskenningar Lewis Hamilton hefur óskað eftir því við aðdáendur sína að þeir hætti samsæriskenningum um að Mercedes liðið sé að hjálpa Nico Rosberg. 6. maí 2016 21:00 Force India mun kynna breyttan bíl á Spáni Formúlu 1 lið Force India mun koma með tasvert breyttan bíl til Spánar um helgina, samkvæmt Vijay Mallya liðsstjóra Force India. 10. maí 2016 16:45 Mest lesið Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti Reiddist Guðjóni og hætti í landsliðinu: „Þér er ekki fyrirgefið fyrir svona“ Fótbolti Arnar Guðjónsson tekur við Stólunum Körfubolti Undrabarnið í aðalhlutverki í sýningu Spánverja Fótbolti Sjáðu mörk íslenska liðsins á móti Skotum Fótbolti Leyndu því að yfir hundrað íþróttamenn höfðu fallið á lyfjaprófi Sport Robertson vildi ekki ræða Liverpool Fótbolti Hlakkar til að mæta syni Eiðs Smára Fótbolti „Vandræðalegt að fá krampa í bæði læri eftir sextíu mínútur“ Fótbolti Sögðu danskri landsliðskonu að fara heim að vaska upp Fótbolti Fleiri fréttir Sakaður um viljandi árekstur: „Bara séð svona í leikjum og go-kart“ Piastri á ráspól Hamilton segir sögusagnir um ósætti vera þvaður Norris vann í Mónakó í fyrsta sinn Lando Norris hrifsaði til sín ráspólinn á elleftu stundu Verstappen tók fram úr á fyrsta hring og fagnaði sigri Hrikalegur árekstur Tsunoda, nýtt áfall fyrir Ferrari og Piastri fremstur Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Var í lífstíðarbanni en er nú aftur orðinn liðsstjóri í Formúlu 1 Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Sjá meira
Forseti Ferrari ætlast til þess að liðið vinni spænska kappaksturinn Sergio Marchionne ætlast til þess af Ferrari liðinu að það fari að snúa við blaðinu og sigra Mercedes. Hann vill að liðið byrji á að vinna spænska kappaksturinn um helgina. 12. maí 2016 23:45
Bílskúrinn: Rosberg einmana í Rússlandi Nico Rosberg á Mercedes vann sjöttu keppnina í röð í Rússlandi á sunnudag. Hvað var að frétta hjá Lewis Hamilton, hvað var Daniil Kvyat að spá? 4. maí 2016 16:45
Hamilton vill ekki sjá samsæriskenningar Lewis Hamilton hefur óskað eftir því við aðdáendur sína að þeir hætti samsæriskenningum um að Mercedes liðið sé að hjálpa Nico Rosberg. 6. maí 2016 21:00
Force India mun kynna breyttan bíl á Spáni Formúlu 1 lið Force India mun koma með tasvert breyttan bíl til Spánar um helgina, samkvæmt Vijay Mallya liðsstjóra Force India. 10. maí 2016 16:45
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti