Eistinn skoraði 10 mörk, mörg hver glæsileg, átti auk þess nokkrar stoðsendingar á félaga sína.
Pinnonen kom til Aftureldingar í byrjun árs og hefur reynst Mosfellingum vel. Eistinn, sem spilar annað hvort sem leikstjórnandi eða vinstri skytta, skoraði 50 mörk í níu leikjum í deildarkeppninni og er kominn með 39 mörk í úrslitakeppninni, flesta allra í liði Aftureldingar.
Það þarf að fara aftur til ársins 2005 til að finna annan erlendan leikmann sem skoraði 10 mörk eða meira í leik í lokaúrslitum. Það var Georgíumaðurinn Tite Kalandadze sem gerði 10 mörk þegar ÍBV tapaði 31-30 fyrir Haukum í fyrsta leik lokaúrslitanna.

Róbert Julian Duranona náði þeim áfanga fimm sinnum með KA í lokaúrslitunum 1996 og 1997. Duranona skoraði mest 13 mörk í öðrum leiknum gegn Val 1996, einu sinni gerði hann 12 mörk og þrisvar sinnum 11 mörk.
Duranona, sem er frá Kúbu en fékk íslenskan ríkisborgararétt 1996, var nánast óstöðvandi þau tvö tímabil sem hann spilaði á Íslandi.
KA fór í lokaúrslitin bæði árin sem þessi öfluga skytta var hér á landi og vann Íslandsmeistaratitilinn 1997 eftir 3-1 sigur á Aftureldingu. Duranona skoraði alls 82 mörk í átta leikjum í lokaúrslitum, eða 10,25 mörk að meðaltali í leik.
Flest mörk hjá erlendum leikmanni í lokaúrslitum:
13/7 - Róbert Julian Duranona (KA) í leik 2 gegn Val 1996
12/5 - Róbert Julian Duranona í leik 2 gegn Aftureldingu 1997
11/1 - Róbert Julian Duranona í leik 4 gegn Aftureldingu 1997
11/3 - Róbert Julian Duranona í leik 3 gegn Val 1996
11/8 - Róbert Julian Duranona í leik 1 gegn Val 1996
10 - Mikk Pinnonen (Afturelding) í leik 1 gegn Haukum 2016
10 - Tite Kalandadze (ÍBV) í leik 1 gegn Haukum 2005
9 - Petr Baumruk (Haukar) í leik 3 gegn Val 1994
9 - Andrius Stelmokas (KA) í leik 2 gegn Val 2002
9 - Tite Kalandadze í leik 2 gegn Haukum 2005
9/2 - Oleg Titov (Fram) í leik 3 gegn Val 1998
9/4 - Sergei Ziza (KA) í leik 3 gegn Aftureldingu 1997