Menn aðskildir frá drengjum Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2016 11:30 Mikil ógn steðjar að konungsríkinu Lothric og ódauðleg hetja kemur til bjargar.
Souls leikirnir frá FromSoftware hafa skipt aðdáendum tölvuleikja í tvo hópa allt frá því fyrsti leikurinn kom út árið 2011. Þegar kemur að spilun tölvuleikja eru leikirnir sagðir aðskilja menn frá drengjum (og konur frá stúlkum). Leikirnir þykja mjög erfiðir og er spilurum refsað grimmilega fyrir öll mistök. Mörgum þykir þetta frábær þróun í leikjaiðnaði þar sem það færist í aukana að leiða spilara í gegnum nánast alla leiki. Undirritaður skemmti sér vel inn á milli bræðiskasta við spilun nýjasta leiksins Dark Souls 3. Það er eitthvað svo fullnægjandi við það að sigra krefjandi óvini eftir jafnvel nokkrar tilraunir. Þó maður leggi niður stýripinnann af og til og segi sjálfum sér að nú sé nóg komið af þessari pínu, þá er erfitt að snúa ekki aftur til Lothric fullur af eldmóð. Þar til stýripinnanum er kastað næst.Í DS3 eru spilarar aftur í hlutverki ódauðlegrar hetju sem hefur það markmið að bjarga heiminum. Leikurinn lítur mjög vel út, þrátt fyrir nokkra galla, og spilunin er skemmtileg og mjög krefjandi. Konungsríkið Lothric er frábærlega vel hannað og heillandi. Spilurum eru veittar litlar upplýsingar um heiminn sem þeir eiga að bjarga og það verkefni þeirra að afla sér upplýsinga og lesa sig til. Hægt er að velja á milli mismunandi hetja til að spila eins og riddara, galdrakarl og þjófur. Það gefur spilun leiksins ákveðið endurspilunargildi. Hægt er að byggja karakterana upp á mismundandi hátt, en karakterkerfi leiksins er þó ekki það einfaldasta. Eins og áður segir er spilurum refsað grimmilega fyrir öll sín mistök. Þegar menn deyja vakna allir óvinir aftur til lífsins og allar þær sálir (XP) sem búið er að safna tapast. Þó er hægt að sækja þær aftur þar sem spilarar dóu síðast. Þetta leiðir oft til þess að spilarar, og þá sérstaklega þeir sem ekki eru vanir Souls leikjunum, þurfa oft að fara í gegnum sama hluta leiksins. Aðdáendur Dark Souls verða ekki fyrir vonbrigðum með DS3. Þá er minnsta málið að koma nýr inn í seríuna í þessum leik. Það að ferðast um dýflissur Dark Souls 3 er þó ekki allra.
Leikjadómar Leikjavísir Mest lesið „Pabbi hélt alltaf að þú værir kunta, takk fyrir að sanna það“ Lífið Gengu um rústir ratsjárstöðvar og klifu fáfarnasta fjall Hornstranda Lífið Skvísur landsins skáluðu í miðborginni Lífið Vildi frekar hafa David Hasselhoff uppá vegg en Jón Ólafs Lífið „Hugsa fallega til stelpunnar sem ég var þá“ Tíska og hönnun Hætta með Þarf alltaf að vera grín? af persónulegum ástæðum Lífið Kaupir fjórða húsið við sömu götu Lífið Er hægt að komast yfir framhjáhald? Lífið Kristján Einar leitar sér aðstoðar Lífið Íslenskur Hollywood-leikari selur íbúð í Seljahverfinu Lífið Fleiri fréttir Stiklusúpa: Eins gott að þið spöruðuð frídaga inn í haustið Mafia: The Old Country - Fínasta afþreying, þó þunn sé Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Sjá meira