Trump skammast yfir NATO þrátt fyrir gagnrýni Obama Samúel Karl Ólason skrifar 2. apríl 2016 22:46 Donald Trump og Barack Obama. Vísir/EPA
Forsetaframbjóðandinn Donald Trump gagnrýndi í dag NATO bandalagið og sagði aðra meðlimi þess ekki greiða nóg til starfsemi þess. Það gerði hann þrátt fyrir að hafa verið gagnrýndur fyrir ummæli sín um utanríkisstefnu Bandaríkjanna og beðinn um að draga úr þeim.Trump sagði stuðningsmönnum sínum að önnur ríki í NATO væru ekki að greiða sanngjarnan hlut. Annað hvort myndu önnur ríki greiða meira eða yfirgefa bandalagið. Ef það myndi valda því að NATO væri óstarfvirkt væri það allt í lagi. Undanfarnar vikur hefur Trump gagnrýnt NATO harðlega og sagt að bandalagið sé úrelt.Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi Trump í gær fyrir ummæli sín varðandi utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Það gerði hann eftir að Trump neitaði að útiloka beitingu kjarnorkuvopna í Evrópu og að Japan og Suður-Kórea gætu þurft á kjarnorkuvopnum að halda. „Hver sem segir hluti sem þessa veit ekki mikið um utanríkismál, kjarnorkuvopn, Kóreuskagann, né heiminn allan,“ sagði Obama um Trump. Þá varaði hann forsetaframbjóðandann við því að heimurinn væri að fylgjast með kosningunum og orðum frambjóðenda.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira