Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els byrjaði ekki vel á Masters-mótinu í gær. Svo mikið er víst.
Els er 46 ára og hefur unnið fjögur stórmót á ferlinum, síðast Opna breska árið 2012. Hann hefur aldrei unnið Masters-mótið en tvívegis lent í öðru sæti.
Els er ekki líklegur til afreka miðað við árangurinn í gær. Hann átti erfitt uppdráttar eftir fyrstu holuna sem hann spilaði á níu höggum - fimm höggum yfir pari.
Hann kom sér inn á flötina í þremur höggum og átti auðvelt pútt fyrir pari. En það ekki ekki. Né heldur næsta högg. Eða næstu þrjú pútt á eftir.
Þetta voru svo mörg högg að upphaflega ruglaðist skráningin í bandarísku sjónvarpsútsendingunni. Í fyrstu voru tíu högg skráð á hann en það rétt er að hann fór holuna á níu.
„Hann er kominn með yips á ansi háu stigi,“ sagði Úlfar Jónsson sem lýsti þessu ótrúlega atviki á Golfstöðinni í gær.
Bein útsending frá öðrum keppnisdegi hefst klukkan 19.00 í dag.
