Reykjavík er dramatísk kómedía um sambönd og samskipti og gerist í samtímanum. Þetta mun vera frumraun Nilla á hvíta tjaldinu. Þó að hann hafi verið með hlutverk í myndinni var hann í upprunalega ráðinn til þess að sjá um leikmuni en starf hans þróaðist heldur betur, þar sem hann sá alfarið um leikmyndina.
„Ég annaðist leikmyndina, en ég mundi ekki kalla mig leikmyndahönnuð, ef ég gerði það þá yrði það móðgun við leikmyndahönnuði í kvikmyndaiðnaði þessa lands. Ég reisti vídeóbúð á Óðinstorgi og kom heilli íbúð fyrir á Leifsgötu á fimmtu hæð, þar sem engin lyfta var. Ég er ekki frá því að ég hafi lést um heil sjö kíló. Framleiðandi myndarinnar, Sölmundur Ísak, Daníel Gylfason, Haraldur, Dagur og kærasta mín, hún Maríanna, hjálpuðu mér mjög mikið,“ segir Nilli aðspurður hvort hann sé leikmyndahönnuður fyrir kvikmyndina Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson.

Í dag starfar Nilli sem sem sýningarstjóri hjá Íslensku óperunni í Hörpu og líkar það mjög vel.
„Það er mjög gaman að vinna með Íslensku óperunni, en um þessar mundir er óperan að sýna verkið Don Giovanni eftir Wolfgang Amadeus Mozart sem er að vekja mikla lukku hjá áhorfendum,“ segir Nilli.