Gary Martin samdi við Víking Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. febrúar 2016 18:30 Gary Martin spilar fyrir sitt þriðja félag á Íslandi. vísir/stefán
Enski framherjinn Gary Martin er genginn í raðir Víkings, en hann skrifaði undir samning við Fossvogsfélagið í kvöld, samkvæmt heimildum Vísis. Gary kemur til Víkings frá KR þar sem hann hefur spilað frá miðju sumri 2012, en fyrst kom Englendingurinn til Íslands til að spila með ÍA fyrir sex árum síðan. Þessi 25 ára gamli framherji skoraði þrettán mörk fyrir KR í Pepsi-deildinni 2013 og fékk bronsskóinn og svo gullskóinn ári síðar þegar hann skoraði jafn mörg mörk. Hann skoraði fimm mörk í 15 leikjum á síðustu leiktíð. Gary hefur skorað 38 mörk í 80 leikjum í efstu deild á Íslandi fyrir ÍA og KR og verður mikill hvalreki fyrir Víkingsliðið sem hafnaði í níunda sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð. Framherjinn var nokkuð eftirsóttur, en Baldur Stefánsson, varaformaður knattspyrnudeildar KR, staðfesti við Fótbolti.net í dag að nokkur tilboð hefðu borist í Gary. Englendingurinn ræddi við Breiðablik í gær, samkvæmt heimildum Vísis, og Víkinga svo í morgun og ákvað framherjinn á endanum að semja við Fossvogsfélagið. KR fer í æfingaferð til Flórída á morgun en verði gengið nógu hratt frá félagaskiptum gæti Gary verið í liði Víkings á móti HK í Lengjubikarnum annað kvöld.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Enski boltinn Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Handbolti Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Handbolti Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Handbolti Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti „Þarf ekki að láta aðra segja mér hvort að liðið sé nógu gott“ Körfubolti Fleiri fréttir Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Sjá meira