Króatar burstuðu Makedóníu Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. janúar 2016 21:01 Marino Maric skorar eitt af fimm mörkum sínum í kvöld. vísir/epa
Króatía vann Makedóníu, 34-24, í milliriðli eitt á Evrópumótinu í handbolta í kvöld, en fyrr í dag hafði Frakkland betur gegn Hvíta-Rússlandi. Króatía var miklu betra liðið í leiknum og tók Makedóníumenn í kennslustund eins og þeir gerðu við íslenska landsliðið í lokaleik riðlakeppninnar. Líkt og gegn Íslandi tók króatíska liðið afgerandi forskot strax í byrjun og var komð 7-1 yfir eftir tíu mínútna leik. Þeir voru sex mörkum yfir, 17-11, þegar 40 sekúndur voru til loka fyrri hálfleiks en Makedóníumenn skoruðu síðustu tvö mörkin og munurinn því fjögur mörk í hálfleik, 17-13. Í stöðunni 24-16 á 39. mínútu fékk Domadoj Duvnjak, leikstjórnandi Króatíu, tveggja mínútna brottrekstur. Makedónska liðið nýtti sér það, skoraði tvö mörk í röð og minnkaði muninn í sex mörk, 24-18. Endurkoma Makedóníu var svo sannarlega ekki í kortunum því þegar Duvnjak kom aftur inn á skoraði Króatía fjögur mörk í röð og náði tíu marka forskoti, 28-18. Eftir það var augljóslega ekki aftur snúið hjá Makedóníu. Liðin skiptust á að skora það sem eftir lifði leiks en Króatía vann á endanum afskaplega sannfærandi sigur, 34-24, þar sem varnarleikur þess var frábær. Ivan Sliskovic skoraði sex mörk úr sex skotum fyrir Króatíu en Manuel Strlek var kjörinn maður leiksins með fimm mörk úr fimm skotum. Hjá Makedóníu skoraði Dejan Manaskov sjö mörk úr sjö skotum. Króatía er nú með fjögur stig í milliriðli eitt líkt og Frakkland, Noregur og Pólland, en þau tvö síðastnefndu mætast á morgun.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira