Torfæru Tiguan GTE Finnur Thorlacius skrifar 11. janúar 2016 11:12 Stæðilegur og flottur Tiguan GTE. Autoblog
Volkswagen heldur áfram að bjóða nýjar útgáfur af þekktum bílgerðum sínum og sú nýjasta er þessi torfæruútgáfa Tiguan jepplingsins og það með rafmagnsmótorum auk hefðbundinnar brunavélar. Þessi Tiguan er með rafmótora á báðum öxlum en þegar rafmagnið þrýtur sendir brunavélin allt aflið eingöngu til framhjólanna. Hún getur einnig hlaðið rafmagni inná rafmótorana en það má stilla eftir þörfum. Bíllinn er með fjölmörgum aksturstillingum, allt eftir undirlaginu og hvernig nota á bílinn og má velja á milli stillinganna Rocks, Sludge and Sand, Gravel, On-Road, Sport, Snow, Charge og Battery Hold. Samtals er afl drifrásarinnar mjög mikið og skilar það honum í 100 km hraða á 6,4 sekúndum og í hámarkshraðann 193 km/klst. Þessi torfæruútgáfa Tiguan er hærri frá vegi en hefðbundin gerð hans og munar þar næstum 5 sentimetrum. Hann er að auki með hlífðarplötum út um allt, króki að aftan og þakbogum sem staðalbúnað. Ekki kemur fram hvort að þessi bíll fer í fjöldaframleiðslu, en hann er fyrst sýndur sem tilraunabíll og vill Volkswagen örugglega fyrst fá viðbrögð við honum áður en ákvörðun er tekin.Asskoti reffilegur Tiguan.
Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent