Þrír svartir leikarar þóttu sérstaklega líklegir til að vera tilnefndir í ár. Idris Elba fyrir leik sinn í myndinni Beasts of No Nation. Will Smith fyrir Concussion og Micael B. Jordan fyrir Creed.

Um sex þúsund meðlimir Akademíunnar svokölluðu velja tilnefningar, en allir starfa þeir innan kvikmyndageirans í Hollywood. Þetta er eins og áður hefur komið fram annað árið í röð sem að verðlaunin verða fyrir gagnrýni af þessu tagi. Áður hafði listinn ekki einungis innihaldið hvíta leikara síðan árið 1997.
Undanfarin ár hefur akademían fengið yngri og svarta leikara til að ganga til liðs við sig en það virðist ekki hafa náð tilætluðum árangri.