Guðmundur með Dani í milliriðil eftir nauman sigur Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. janúar 2016 20:48 Guðmundur er kominn með danska liðið í milliriðla. vísir/afp
Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í danska landsliðinu komust í milliriðla á EM 2016 í handbolta í kvöld með naumum sigri á Svartfjallalandi, 30-28. Danska liðið vann Rússa í fyrsta leik, 31-25, en það er eitt af sigurstranglegri liðum mótsins. Danir lentu þó í miklum vandræðum í kvöld. Danir byrjuðu betur og voru einu marki yfir eftir tíu mínútur, 5-4, en þá tóku Svartfellingar frumkvæðið og voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16-14. Flestir bjuggust við því að Danir myndi stinga Svartfellinga af í seinni hálfleik og það stefndi í eitthvað slíkt þegar lærisveinar Guðmundar skoruðu fyrstu þrjú mörkin og komust í 17-16. En svartfellska liðið gafst ekki upp og gaf stjörnum prýddum meistaraefnum danska liðsins ekkert eftir. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var jafnt, 25-25. Guðmundur Guðmundsson var ekki ánægður með sína menn og lét ofurstjörnuna Mikkel Hansen byrja á bekknum í seinni hálfleik. Hansen átti ekki góðan dag og skoraði aðeins tvö mörk í sjö skotum í fyrri hálfleik. Þegar átta mínútur voru eftir tók Danmörk aftur frumkvæðið í leiknum með marki línumannsins Jespers Nöddesbo, en hann kom Dönum þá í 27-26. Nöddesbo kom Danmörku svo í 29-28 og tveimur mínútum fyrir leikslok gekk Henrik Töft Hansen frá sigrinum með 30. marki danska liðsins. Lokatölur, 30-28. Vinstri hornamaðurinn Anders Eggert var markahæstur Dana með sex mörk úr sjö skotum en hjá Svartfjallalandi skoraði Nemanja Grbovic sjö mörk úr sjö skotum. Danmörk mætir Ungverjalandi í lokaumferð D-riðils og tekur fjögur stig með sér í milliriðla með sigri þar.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira