Bræðurnir úr Hrútum valdir bestu erlendu leikararnir í Palm Springs

Í rökstuðningi dómnefndarinnar segir að verðlaunin falli þeim í skaut fyrir „vegna myrks kómísks mikilvægis og tilfinningar fyrir sameiginlegri fortíð sem knúði frammistöðu þeirra, ásamt hinni tignarlegu leið sem þeir leiddu persónur sínar frá fjandskap að því að verða háðir hvor öðrum.“
Hrútar voru frumsýndir á kvikmyndahátíðinni í Cannes en þar vann myndin til Un Certain Regard verðalauna. Síðan þá hefur myndin sópað til sín verðlaunum um víða veröld en verðlaunin í kvöld eru þau 23. í röðinni.
Meðal verðlauna sem myndin hefur hlotið má nefna þrenn verðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Semana í Valladolid, tvenn verðlaun í Minsk í Hvíta-Rússlandi auk fjölda annarra. Myndin var framlag Íslands til óskarsins þetta árið en hlaut ekki tilnefningu.
Tengdar fréttir

Fá Hrútar Evrópsku kvikmyndaverðlaunin?
Í kvöld verða Evrópsku kvikmyndaverðlaunin veitt í Berlín. Verðlaunin eru veitt af Evrópsku kvikmyndaakademíunni. Kvikmyndin Hrútar er meðal þeirra sex mynda sem tilnefndar eru sem kvikmynd ársins.

Sjáðu stiklur úr Hrútum frá Bandaríkjunum og Ítalíu: Ítalskur Siggi Sigurjóns kemur vel út
Cohen Media Group hefur gefið út sína eigin stiklu úr myndinni Hrútar eða Rams eins og hún nefnist á ensku.

Hrútar unnu til þrennra verðlauna um helgina
Kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson heldur áfram að vinna til verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Myndin vann til tvennra verðlauna í Minsk í Hvíta Rússlandi á föstudagskvöldið og var auk þess valin besta myndin í Þessalóníku í Grikklandi á laugardagskvöldið. Það er elsta og virtasta kvikmyndahátíðin á Balkanskaga.

Kvikmyndin Hrútar halar inn verðlaunum
Hrútar hafa sópað að sér verðlaunum á árinu. Myndin er tilnefnd sem besta kvikmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum sem verða afhent í Berlín um helgina.

Kvikmyndin Hrútar aðgengileg öllum á Íslandi á löglegan hátt
Í kjölfar umræðu um ólöglegt niðurhal langar aðstandendum kvikmyndarinnar Hrútar að koma því á framfæri að myndin er nú aðgengileg öllum á Íslandi á einfaldan og löglegan hátt.

Næsta mynd Gríms verður um konur og kýr
Mun segja frá konu í þröngsýnu þorpi á Íslandi.