„Mér finnst hún alveg frábær. Það er alveg meiriháttar að ná listamanni til landsins sem er akkúrat núna á toppnum á sínum ferli. Hún er frábær á sviði og með eina flottustu röddina í tónlistarheiminum í dag,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson sem stendur fyrir tónleikunum.

Er hún fyrsta konan til að ná sex lögum af sömu plötu inn á topp tíu. Lagið Domino kom svo næst og fór það beint í efsta sæti um allan heim en með því lagi náði Jessie J fótfestu í Bandaríkjunum.
Með nýjasta smellinum sínum, Bang Bang, þar sem hún fær Ariana Grande og Nicky Minaj með sér, er hún virkilega búin að stimpla sig inn sem ofurstjörnu.
„Hlutur kvenna hefur ekki verið mikill í erlendu tónleikahaldi hér á landi undanfarin misseri og því finnst mér það líka sérlega frábært að fá hana til landsins. Hún er líka frábær karakter og rakaði meira að segja af sér hárið fyrir nokkrum árum til að styrkja gott málefni,“ segir Guðbjartur.
Margir sáu hana árið 2012 í sjónvarpinu á lokaathöfn Ólympíuleikana í London, þar sem hún söng We Will Rock You með hljómsveitinni Queen. Hún hefur einnig verið þjálfari og leiðbeinandi í The Voice í Bretlandi og Ástralíu.
Ólíkt mörgum öðrum stjörnum í tónlistarheiminum þá semur hún flest af sínum lögum sjálf en áður en hún hóf söngferil sinn vann hún við að semja lög fyrir aðra. Hún hefur meðal annars samið lög og texta fyrir Miley Cyrus, Justin Timberlake, Chris Brown, David Guetta og marga fleiri.

Jessie J er á tónleikaferð um heiminn að kynna sína þriðju breiðskífu. Hún verður með hljómsveit með sér skipaða topphljóðfæraleikurum og bakröddum. „Þetta er alveg tuttugu manna hópur sem kemur með henni,“ segir Guðbjartur.
Ekki liggur fyrir hvaða hljómsveit eða listamaður sér um upphitun á tónleikunum að svo stöddu.
Miðasala hefst þriðjudaginn 28. júlí á midi.is klukkan 10.00. Einnig verður hægt að fá miða í verslunum Brim Laugavegi og Kringlunni.
Jessie J er 27 ára gömul tónlistarkona, fædd og uppalin í London.
Hún hefur gefið út þrjár breiðskífur; Who You Are árið 2011, Alive árið 2013 og Sweet Talker árið 2014. Hún hefur selt yfir þrjár milljónir platna og yfir tuttugu milljónir smáskífulaga um heim allan.
Fyrsta plata Jessie J naut strax mikilla vinsælda um heim allan, náði fyrsta sæti víða og hefur náð platínusölu í yfir 15 löndum.
Hennar vinsælustu lög eru Price Tag, Domino, Bang Bang og Who You Are, svo nokkur séu nefnd.
Þá var hún tilnefnd til Grammy-verðlaunanna í ár fyrir samstarf sitt með Ariana Grande og Nicki Minaj í laginu Bang Bang.
Lagið Bang Bang er með tæpar 400 milljónir áhorfa á Youtube. Price Tag er með nærri því hálfan milljarð áhorfa og Domino með rétt tæplega 200 milljón áhorf.
Jessie J hefur samið fyrir Miley Cyrus, Justin Timberlake, Chris Brown, David Guetta og marga fleiri.