Stærð rjúpnastofnsins undir meðallagi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 5. júní 2015 07:00 Sveiflur á stofni rjúpunnar hafa breyst mikið frá friðun hennar. fréttablaðið/pjetur „
Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2015 er lokið,“ segir í fréttatilkynningu Náttúrufræðistofnunar Íslands frá því í gær. Alls voru taldir 1.308 karrar sem stofnunin telur vera um eitt prósent heildarfjölda. Stærð stofnsins nú er undir sögulegu meðallagi. Talningar í ár gengu illa vegna tíðarfars en alls voru karrar taldir á 36 svæðum í öllum landshlutum. Minnkun stofnsins á Suðvesturlandi og Vestfjörðum var talsverð. Á Suðvesturlandi sáust 28 prósentum færri karrar en í fyrra og á Vestfjörðum sáust 43 prósentum færri karrar en í fyrra. Mest fjölgun var hins vegar á Norðausturlandi en þar sáust 39 prósentum fleiri karrar en í fyrra. „Í sögulegu samhengi er rjúpnafjöldinn 2015 undir meðallagi alls staðar nema á Norðausturlandi og Austurlandi,“ segir í tilkynningunni. Náttúrufræðistofnun segir í tilkynningunni að sveiflur í stofnstærð hafi áður tekið tíu til tólf ár en það hafi breyst frá friðun rjúpunnar árin 2003 og 2004. Stofnunin segir nú skemmra milli hámarka stofnsins. „Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á ástæðum fjölgunar munu liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna, afföllum 2014 til 2015 og veiði 2014,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Sjá meira