Uppljóstranir um njósnir Bandaríkjamanna, pólsk fjallgöngugoðsögn, trommuhringur og ísgerð í eftirleik þjóðarmorðsins í Rúanda auk rokks í Neskaupstað og á Grænlandi er meðal þess sem myndir hátíðarinnar fjalla um.
Óskarsverðlaunamyndin Citizenfour eftir Lauru Poitras er meðal mynda sem verða sýndar. Myndin var valin besta heimildarmyndin bæði á Óskarsverðlaunahátíðinni og BAFTA-hátíðinni. Poitras mun taka þátt í spurt og svarað sýningu á myndinni laugardaginn 11. apríl klukkan 20.
Lisa Fruchtmann kemur til landsins og fyrsta leikstjórnarverk hennar, Sweet Dreams, verður sýnt á hátíðinni. Myndin fjallar um konur af ólíkum uppruna sem koma saman til að stofna trommuhring og ísgerð í eftirleik þjóðarmorðsins í Rúanda. Fruchtmann hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu myndarinnar The Right Stuff og klippti einnig Apocalypse Now og Godfather III.
Bæði Fruchtmann og Poitras munu vera með námskeið á hátíðinni. Ókeypis er á námskeiðin og aðgangur öllum opinn.

Opnunarmynd hátíðarinnar er einnig um rokk. Þungarokk. No Idiots Allowed í leikstjórn Halls Arnar Árnasonar, fjallar um rokkhátíðina Eistnaflug, sem fer fram á Neskaupstað ár hvert. Þetta er fyrsta heimildamynd Halls í fullri lengd.
Einnig verða nokkrar íslenskar stuttmyndir og styttri heimildamyndir sýndar saman í einni sýningu, m.a. falleg mynd sem sýnir norðurljósin og merkileg mynd um lífshlaup heimskautarefsins.
Icelandic Short&Docs hátíðin hefur verið á faraldsfæti og farið með íslenskar stutt- og heimildamyndir í ferðir um Kanada og Bandaríkin í samstarfi við Taste of Iceland. Samhliða hátíðinni í Reykjavík verður sýning á úrvali íslenskra mynda í Edmonton í Kanada þann 12. apríl. Einnig er fyrirhugað að sýna íslenskar stuttmyndir í lok mánaðarins í Mexíkó á vegum Reykjavík Shorts&Docs.
Þetta er í þrettánda skipti sem hátíðin fer fram en í gegnum tíðina hefur hún verið á hinum ýmsu stöðum. Þar má nefna Háskólabíó, Norræna húsið, Regnbogann og Kex hostel.
Miðasala fer fram í Bíó Paradís og er fjöldi sýninga takmarkaður. Nánari upplýsingar má finna á shortsanddocsfest.com.