Í fyrra kom út The Lego Movie sem fékk frábæra dóma gagnrýnenda og féll einnig vel í kramið hjá áhorfendum. Notendur síðunnar IMDb gefa henni til að mynda einkunnina 7,8 og skor gagnrýnenda Rotten Tomatoes hljóðar upp á 96 prósent.
Sjá einnig:Forstjóri Lego dansaði af ánægju
Myndin skilaði einnig sínu í kassann því hagnaður Lego jókst um tæplega milljarð danskra króna milli áranna 2013 og 2014, úr 6,1 milljarði í sjö milljarða. Forstjórinn var svo himinlifandi með árangurinn að á fundi söng hann einkennislag myndarinnar, Everything Is Awesome, og steig dans með.
Fyrsta myndin af þremur er væntanleg haustið 2016. Sú er úr Ninjago-vörulínunni. Ekki er komið opinbert nafn á myndina. Áður hafa verið gerðir þættir um persónurnar, Lego Ninjago: Masters of Spinjitzu, og á fjórða sería þeirra að hefjast með vorinu.

Rúmu ári síðar, eða í október 2017, er von á The Lego Batman Movie. Batman lék nokkuð stórt hlutverk og vakti slíka hrifningu að ákveðið var að semja sérmynd fyrir hann.
Staðfest er að Will Arnett muni aftur taka að sér hlutverk Batmans en hann hefur meðal annars leikið í Arrested Development-þáttunum auk þess að taka þátt í talsetningu mynda á borð við Ratatouille og Despicable Me. Handritshöfundur Óskarsverðlaunanna í ár, Seth Grahame-Smith, mun skrifa handrit myndarinnar.
Síðust á lista, en alls ekki síst, er framhaldsmynd The Lego Movie. Í vikunni staðfesti Greg Silverman, alþjóðlegur forseti framleiðsludeildar Warner Brothers, að myndin kæmi út að þremur árum liðnum.
Phil Lord og Christopher Miller, höfundar fyrri myndarinnar, skrifa framhaldið og leikstjórn verður í höndum Robs Schrab. Hann hefur meðal annars stýrt fjölda þátta af Community og The Mindy Project. „Við getum ekki beðið eftir því að vinna með Schrab,“ segja Lord og Miller. „Hann er meistari þegar kemur að gríni og við höfum fylgst með honum í mörg ár.“