Vissi ekki hversu mikil ábyrgð fylgdi markvarðarstöðunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar 22. janúar 2015 06:00 Björgvin Páll Gústavsson hefur staðið sig mjög vel á heimsmeistaramótinu í Katar. vísir/eva björk
Björgvin Páll Gústavsson hefur átt gott mót til þessa á HM í Katar – betra en margir þorðu að vona enda höfðu margir áhyggjur af markvörslunni fyrir mót. Hann var magnaður á löngum köflum gegn Frakklandi þar sem Ísland spilaði vel og gerði jafntefli við Evrópumeistarana eftir að hafa leitt lengi vel í leiknum. „Ég vaknaði sáttur í morgun en þreyttur,“ sagði Björgvin Páll við Fréttablaðið á hóteli íslenska liðsins í Doha í gær. „Leikurinn er gott veganesti fyrir framhaldið. Þar kom þessi íslenska skapgerð og geðveiki fram sem við þurfum á að halda.“vísir/eva björkÁbyrgð markvarða mikil Björgvin Páll er eins og svo margir markverðir, hvort sem er í handbolta eða fótbolta, gagnrýndur þegar hann á slæman dag. Hann segir sér hafa gengið misvel í gegnum tíðina að taka gagnrýninni. „Flest gagnrýni á rétt á sér en þegar ég valdi þessa stöðu átta ára gamall vissi ég ekki hversu mikil ábyrgð henni fylgir. Ef markvarslan klikkar er bara bent á einn eða tvo menn. Það er hægt að benda á fleiri ef vörn eða sókn klikkar,“ segir hann. „Þetta er því mikil ábyrgð en ein af ástæðunum fyrir því að ég er enn að spila handbolta er að þetta er áskorun sem gaman er að takast á við.“ Björgvin Páll komst snemma í gang á mótinu og segir að það hafi verið afar mikilvægt. „Að fá þessa góðu tilfinningu fyrir markvörslunni skiptir miklu máli. Æfingaleikirnir fyrir mót gengu upp og ofan en ég átti von á að þetta myndi smella í mótinu því vörnin okkar er háð því að það séu miklar tilfinningar og ákveðin geðveiki í gangi. Þegar hún kemur er auðvelt að fylgja með.“ Hann segist vilja halda sér stöðugum með því að verja minnst 12-14 skot í leik. „Það hefur gengið vel í fyrstu þremur leikjum okkar á mótinu.“vísir/eva björkEins og fífl í fótbolta Þegar illa gengur lætur Björgvin stundum öllum illum látum inni á vellinum. Hann sparkar og kýlir markrammann og fékk til að mynda tiltal frá dómara á mótinu eftir slíka uppákomu. Björgvin þagði en gaf honum illt auga á móti. „Tilfinningar eru stór hluti af mínum leik – hvort sem þær eru neikvæðar eða jákvæðar. Þegar illa gengur á ég til dæmis það til að vera ósanngjarn við samherjana. Það gleymist þá bara eftir leik,“ segir hann. „En tilfinningar eru hluti af þessu og það er erfitt að stjórna þeim bara í aðra áttina. Það verður að vera kveikt á þeim og það hjálpar manni að halda einbeitingu á stórmótum.“ Hann segir að það sé ekki þreytandi að takast á við þessar miklu sveiflur sem fylgja því að standa í handboltamarkinu, ekki síst fyrir tilfinningaveru eins og Björgvin Pál. „Nei, ég er svo rólegur utan vallarins að þetta jafnast út. Ég á góða konu sem heldur mér á jörðinni og það er lítill æsingur í mér utan handboltans – og reyndar fótboltans líka. Ég verð líka eins og fífl,“ sagði hann og hló. „Þegar ég var yngri var ég á útopnu allan daginn en ég hef náð að beina orkunni að handboltanum og skilja þetta allt saman eftir inni á vellinum, hvort sem er á æfingum eða í leikjum.“ Hann segir að það eigi við um sig eins og aðra – það þýði ekkert að láta mótlætið fara með sig á stórmótum þar sem stutt er á milli leikja. „Þá er best að ofhugsa ekki hlutina og hengja sig ekki of mikið á einn leik, hvort sem það gekk vel eða illa í honum. Það þarf að jafna sig fljótt og vel á milli leikja, bæði líkamlega sem og andlega, sem er afar stór þáttur hjá markvörðum.“vísir/eva björkÞekkir tékkensku skytturnar vel Ísland mætir Tékklandi í kvöld og þá mun mæða á Björgvini Páli að verjast stórskyttunum Filip Jicha, leikmanni Keil, og Pavel Horak, sem er hjá Füchse Berlin. „Ég hef oft spilað gegn þeim báðum og við þurfum að halda þeim niðri til að vinna leikinn. Tékkarnir hafa ekki komist almennilega í gang í þessu móti og ég vona að þeim takist það ekki á morgun því sigur mun tryggja okkur sæti í 16-liða úrslitunum. Þetta er því afar mikilvægur leikur.“
HM 2015 í Katar Tengdar fréttir Gæti endað illa að þurfa að mæta Egyptum í úrslitaleik Gunnar Magnússon hefur kortlagt Tékkana fyrir leikinn mikilvæga á HM í kvöld. 22. janúar 2015 08:00 Snorri Steinn: Helvíti lélegir þegar við slökum á Snorri Steinn Guðjónsson átti frábæran leik gegn Frökkum en varar við að menn gefi eftir gegn Tékkum í kvöld. 22. janúar 2015 09:00 Dagur: Leikmenn geta ekkert sagt Dagur Sigurðsson ákvað að breyta um varnartaktík nokkrum klukkutímum fyrir leikinn gegn Dönum á HM. 22. janúar 2015 09:00 Ásgeir Örn: Veit ekki hvernig gömlu mennirnir fara að þessu Strákarnir stefna að því að kaffæra Tékkana strax í byrjun leiks. 22. janúar 2015 11:30 Aron Kristjáns: Við vorum að spila betur saman Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska landsliðsins, var eins og leikmennirnir ánægður með leikinn gegn Frökkum. Það er oft erfitt að sjá á þjálfaranum hvort hann er kátur eða glaður því hann heldur ætíð ró sinni hvernig sem á gengur. 22. janúar 2015 13:00 Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Sektin hans Messi er leyndarmál Fótbolti Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Fótbolti Fleiri fréttir Hægt að hlusta frítt á Þóri Hergeirs segja frá leyndarmálunum Lyftu bikarnum fyrir framan þær en hafa síðan ekki unnið Val í þúsund daga Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni Sjá meira
Gæti endað illa að þurfa að mæta Egyptum í úrslitaleik Gunnar Magnússon hefur kortlagt Tékkana fyrir leikinn mikilvæga á HM í kvöld. 22. janúar 2015 08:00
Snorri Steinn: Helvíti lélegir þegar við slökum á Snorri Steinn Guðjónsson átti frábæran leik gegn Frökkum en varar við að menn gefi eftir gegn Tékkum í kvöld. 22. janúar 2015 09:00
Dagur: Leikmenn geta ekkert sagt Dagur Sigurðsson ákvað að breyta um varnartaktík nokkrum klukkutímum fyrir leikinn gegn Dönum á HM. 22. janúar 2015 09:00
Ásgeir Örn: Veit ekki hvernig gömlu mennirnir fara að þessu Strákarnir stefna að því að kaffæra Tékkana strax í byrjun leiks. 22. janúar 2015 11:30
Aron Kristjáns: Við vorum að spila betur saman Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska landsliðsins, var eins og leikmennirnir ánægður með leikinn gegn Frökkum. Það er oft erfitt að sjá á þjálfaranum hvort hann er kátur eða glaður því hann heldur ætíð ró sinni hvernig sem á gengur. 22. janúar 2015 13:00