Tegund í útrýmingarhættu Atli Fannar Bjarkason skrifar 22. janúar 2015 07:00 Ég er rosalega mikið að reyna að muna nafnið á þessum náunga sem gerði allt vitlaust í gær. Það er eins og mig minni að hann eigi bróður sem er alþingismaður. Eða bakari. Ég man það ekki. Þessi náungi hefur bullað um alls konar minnihlutahópa undanfarin ár og verandi hvítur karl sem er kominn af besta skeiði er enginn betur til þess fallinn en einmitt hann. Ég man samt ekki hvað hann heitir. Grani? Guffi Nielsen? Þessu er algjörlega stolið úr mér. Ég man samt að hann er hræddasti maður landsins. Hann er svo hræddur við homma og múslima að hann byrjaði að blogga um það á Moggablogginu áður en Björn Bjarnason lærði að kveikja á tölvunni sinni. Hann er líka með eitthvert undarlegt steypublæti vegna þess að hann elskar Reykjavíkurflugvöll meira en fólk. Ég get samt ekki komið fyrir mig nafninu á þessum manni. Ég sá mynd af honum og hann leit út fyrir að hafa troðið upp í sig saltkjöti þangað til hver einasti dropi af vökva í líkama hans var kyrfilega bundinn. Georg Njálsson? Nei, ég man þetta ekki. Einhverjar fréttir birtust af heilsuátaki hans um daginn. Hann hlýtur að hafa gefist upp á því þegar hann uppgötvaði að hommar og múslimar ganga óáreittir um líkamsræktarstöðvar landsins. Hvað heitir þessi maður? Guðjón? Geir? Ég er ekki að fara að muna þetta. Ég man bara að hann virtist mjög hræddur. Og ég skil hann vel. Ég væri líka hræddur ef ég væri í útrýmingarhættu. Þessi náungi tilheyrir nefnilega stofni af útþöndum frethólkum sem er hægt og rólega að hverfa af yfirborði jarðar. Honum var sparkað úr mannréttindaráði Reykjavíkurborgar nánast um leið og hann var skipaður. Það hefði samt verið þess virði að leyfa honum að taka einn fund til að sýna honum hversu lítið erindi hann á í ráð sem fer með málefni minnihlutahópa. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson Skoðun Hið landlæga fúsk Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann Skoðun
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun
Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson Skoðun
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun
Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson Skoðun