Gróðurhús dansmenningar 30. desember 2015 11:00 Hluti kennara í Kramhúsinu, þau Guðmundur Elías, Sybille, Guðbjörg og Natasha. mynd/stefán
Kramhúsið kynnir: Ný námskeið hefjast í Kramhúsinu á nýju ári. Aukin áhersla verður á barnastarf auk fjölbreyttra og spennandi námskeiða fyrir fullorðna. Kramhúsið er gróðurhús dansmenningar á Íslandi og hefur verið í 30 ár. Við fáum til okkar danskennara frá öllum heimshornum og leggjum mikið upp úr því að vinna með skapandi fólki með mikla reynslu,“ segir Hafdís Árnadóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi Kramhússins á Skólavörðustíg. „Eftir áramót hefjast ný námskeið og nú leggjum við aukna áherslu á barnastarfið okkar.“Nýtt fyrir krakka í Kramhúsinu „Söngleikhús með Sibylle Köll er nýtt námskeið. Söngleikhúsið er ætlað börnum 7-12 ára, með áherslu á söngkennslu í 4 manna hópum þar sem unnið er með framkomu, leiklist og dans. Sibylle er menntaður söngvari, dansari og söngkennari.“ „Strákar dansa er einnig nýtt námskeið undir stjórn Guðmundar Elíasar. Þetta er sérnámskeið fyrir 10 ára og eldri þar sem strákarnir fá að blómstra. Guðmundur lærði við Listdansskóla Íslands og í Hollandi. Hann þjálfar dansarana í Billy Elliot-sýningunni í Borgarleikhúsinu.“Krakkar úr breikhóp ásamt Natöshu, þeir Elvar Árni, Einar Steinn, Anthony Kyle og Alexander James. mynd/stefánMeira breikBætt hefur verið við tímum í breikdansi sem er bæði fyrir stráka og stelpur, aldursskipt frá fimm ára aldri. Natasha hefur kennt breikdans í Kramhúsinu í mörg ár og byggt upp breik- og street-dansmenningu hér á landi. Hip hop og MJ street-dans kemur nýtt inn á þessari önn vegna aukins áhuga á dansi.Tónlistarleikhús með fjölhæfu listakonunni Möggu Stínu Blöndal er sívinsælt. Í tónlistarleikhúsinu eru stundaðar rannsóknir á hvers kyns hljóðum, tónum og eigin töframætti. Þar læra börnin um eðli og eiginleika alls kyns hljóða og tóna og gera tilraunir. „Dans og skapandi hreyfing fyrir 3 ára börn ásamt foreldri og 4-5 ára börn undir handleiðslu Guðbjargar Arnardóttur danskennara. Dansþjálfun barna á þessum aldri fer fram í gegn um leik, tjáningu og spuna. Guðbjörg hefur sérhæft sig í barnadönsum, ballett og nútímadansi.“ Brogan og Þórunn Ylfa sjá um danskennsluna fyrir eldri krakkana, aldursskipt fyrir 7 ára og eldri.Nýtt fyrir fullorðna „Strax í byrjun janúar hefst Afró workshop með Ivve Martinez. Kizomba-paradans er nýtt námskeið með Anais, danskennnara frá Frakklandi. Kizomba hefur verið kallað African tango og nýtur mikilla vinsælda í Evrópu. Þá bjóðum við upp á Flamenco tíma með Alejandra, sem kemur frá Spáni og hefur sérhæft sig í hefðbundnum flamenco- og sígaunatakti. Einnig kemur gestakennari frá Belgíu, Kim sem kennir nútímadans." "Þessi upptalning er þó aðeins brot af þeirri dagskrá sem Kramhúsið býður upp á. Fjöldi annarra dansnámskeiða auk leikfimi er fast í okkar dagskrá. Sérsniðnir tímar fyrir hópa, bæði gæsagigg, vinnustaðahristing og vinkonuskemmtun er vinsælt allt árið,“ segir Hafdís. Nánar má kynna sér dagskrá Kramhússins á kramhusid.is og á Facebook.
Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira