Geimverurnar mæta aftur til jarðarinnar tvíefldar og bálillar eftir stríðið mikla árið 1996 í þessari mynd og mun reyna á alla kænsku jarðarbúa til að vinna bug á þessum óvini.
Miðað við hversu áberandi Steven Hiller var í fyrri myndinni var ljóst að ekki var hægt að leggja í framhald án þess að útskýra fjarveru hans.
Sjá einnig: Geimverurnar mæta bálillar til baka í framhaldi Independence day
Á síðunni kemur fram að í nóvember árið 1997 var enduruppbyggingin komin vel á veg eftir stríðið mikla árið 1996. Búið var að yfirbuga flestar geimverurnar , fyrir utan lítinn andstöðuhóp á afskekktu svæði í Kongó.
Mars árið 1998: Leiðtogar heimsins leggja til hliðar allar deilur og í framhaldinu er stofnuð stofnuð alþjóðleg varnarmálastofnun sem fylgist grannt með grunsamlegum ferðum í geimnum og undirbýr varnir jarðarinnar ef að til annarrar innrásar.

Og þá er komið að örlögum Stevens Hiller, sem Will Smith lék, en hann fórst í reynsluflugi á þessari nýju tvinnþotu í apríl árið 2007.
Tvinnþotan var þó ekki eina tækniframförin sem mannkynið fékk frá geimverunum því samkvæmt því sem kemur fram á síðunni War of 1996 þá voru snjallsímarnir, drónar og líkamsskannar á flugvöllum fengnir frá geimverunum.
Þeir sem eru hvað spenntastir fyrir frumsýningu myndarinnar geta því drepið tímann fram að frumsýningardeginum í júní á næsta ári inni á þessari síðu. Síðan verðum við mannfólkið einfaldlega að vona að geimverurnar séu ekki komnar með vírusvörn í þetta skiptið.