Opna bréfið er hugmynd Wilkinson að sjöttu DieHard myndinni sem myndi segja frá einum þekktasta rannsóknarlögreglumanni hvíta tjaldsins John McClane sem aðdáendur hafa fylgt eftir í 27 ár.
Um er að ræða þekktasta hlutverk leikarans BruceWillis sem hefur leikið McClane fimm sinnum í Die Hard-seríunni og er Wilkinson vongóður um að handrit hans verði notað fyrir sjöttu myndina.
Langt leiddur Die Hard-fíkill
Wilkinson segist sjálfur vera langt leiddur fíkill þegar kemur að Die Hard-myndunum en hann leggur til að sjötta myndin sýni John McClane á sínum yngri árum, þar sem hann rannsakar morð á barni, og John McClane í nútímanum þar sem hann reynir að stöðva árás hryðjuverkamanna á meðan fangelsisóeirðir standa yfir.
Saga Wilkinsons hefst þegar McClane er fangelsaður fyrir morð á manni sem var grunaður um mansal. Það sem McClane veit ekki er að tveir stórhættulegir hryðjuverkamenn eru fyrir í þessu fangelsi. Má því ætla að hryðjuverkamennirnir fái að kynnast útsjónarsemi og óþreytandi elju McClanes í þessum rammgerða fangelsi ef hugmynd Wilkinsons verður að veruleika. Nú þegar hefur auglýsingin verið birt á Instagram og má sjá hana hér fyrir neðan:
Yippee ki yay MFs pic.twitter.com/36YwFr7177
— Ivy Lam (@ivylam22) November 9, 2015
Sjá einnig: Sjötta Die Hard mun gerast í nútímanum og fortíðinni
Um miðjan október mánuð var síðan greint frá því að bandaríska kvikmyndaverið Fox ynni hörðum höndum að því að láta sjöttu Die Hard-myndina verða að veruleika. Þá var greint frá því að myndin sem Fox vonaðist til að framleiða yrði einskonar forsaga McClanes sem myndi fylgja honum eftir þegar hann stígur sín fyrstu skref sem lögreglumaður í New York-borg árið 1979 en myndi einnig segja samhliða frá McClane í nútímanum. Því virðist Wilkinson hafa fylgt þeirri forskrift sem var gefin að sjöttu myndinni í október síðastliðnum.
Hér fyrir neðan má sjá hans viðbrögð við þessu öllu saman:
Every now and then, say "What the fuck." "What the fuck" gives you freedom. Freedom brings opportunity, opportunity makes your future.
— Eric D. Wilkinson (@indeeproducer) November 9, 2015
Wilkinson er ekki stærsta nafnið í heimi handritshöfunda en hann hefur framleitt myndir á borð við The Man FromEarth, Sparks og Subterranea.
Sjá má stiklu úr The Man fromEarth hér fyrir neðan: