Sem áður leika þeir Ben Stiller og Owen Wilson þá Derek Zoolander og Hansel. Þeir virðast aftur þurfa að kljást vil illmennið Mugatu, sem leikinn er af Will Ferrell. Eins og fram kemur í stiklunni virðist Mugatu vera að myrða allt fallegasta fólk heims og er söngvarinn Justin Bieber myrtur í stiklunni.
