Tuchel gerði betur en Klopp og vann gömlu lærisveinana í fyrstu tilraun Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. október 2015 20:22 Marco Reus fagnar marki sínu með Aubameyang og Shinji Kagawa. vísir/getty
Dortmund komst aftur á sigurbraut í þýsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið lagði Mainz, 2-0, á útivelli í fyrsta leik níundu umferðar deildarinnar. Marco Reus, sem hefur farið á kostum á tímabilinu, kom gestunum frá Dortmund yfir á 18. mínútu, 1-0, og Armeninn Henrik Mkhitaryan tvöfaldaði forskotið átta mínútum fyrir leikslok. Loaktölur, 2-0. Thomas Tuchel, þjálfari Dortmund, var að mæta sínum gömlu lærisveinum, en hann stýrði liðinu frá 2009-2014 áður en hann sagði starfi sínu lausu fyrir síðasta tímabil. Hann þjálfaði ekkert á síðustu leiktíð en tók svo við starfinu af Jürgen Klopp í sumar. Tuchel, líkt og Klopp, er dýrkaður og dáður hjá Mainz, en hann gerði betur en forveri sinn Klopp með því að vinna Mainz í fyrstu tilraun. Eftir að Klopp yfirgaf Mainz og tók við Dortmund gerði hann markalaust jafntefli við gömlu lærisveinana í fyrstu tilraun tímabilið 2009-2010 þegar liðið var komið aftur upp í efstu deild. Dortmund er sem fyrr í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar með 20 stig, fjórum stigum á eftir meisturum Bayern München sem eiga þó leik til góða.
Þýski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Sjá meira