Án hljóðbrellna hefði Everest orðið talsvert minna spennandi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. október 2015 14:08 Baltasar Kormákur leikstýrði myndinni. vísir
Mínútulangt brot frá BBC úr kvikmyndinni Everest án allra hljóðbrellna sýnir glögglega hversu mikilvæg hljóðvinnsla í kvikmyndum er. Áhorfendur myndarinnar hafa talað um að atriðið eins og það er í lokaútgáfu kvikmyndarinnar kalli fram gæsahúð vegna þess hve spennandi það er. Í atriðinu fer Josh Brolin yfir djúpt gil á ótraustum stiga og þegar snjór fellur úr hlíðinni við hlið hans skrikar honum fótur með þeim afleiðingum að um tíma virðist sem hann muni hrapa niður mörg hundruð metra og láta lífið. Samferðamönnum hans á fjallinu bregður við þetta og leita leiða í ofvæni til að bjarga honum. En án hljóðbrellna virðast leikararnir sallarólegir og þar af leiðandi verður áhorfandinn ekki eins spenntur. Brotið má sjá hér að neðan og til samanburðar má sjá stiklu myndarinnar en þar er atriðið að finna á mínútu 1.30 með hljóðbrellum og eftirvinnslu. Munurinn er gífurlegur. Hér að neðan má svo sjá stiklu myndarinnar.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira