Arsenal og Chelsea töpuðu bæði leikjum sínum í Meistaradeildinni í gærkvöldi sem þýðir að ensku liðin í Meistaradeildinni hafa aðeins náð í samtals þrjú stig af átján mögulegum í fyrstu sex leikjum sínum í riðlakeppninni í ár.
Margir halda því fram að enska úrvalsdeildin sé sú besta í heimi, en það er erfitt að rökstyðja það þegar ensku liðin hafa aðeins náð í sautján prósent stiga í boði í Meistaradeildinni til þessa.
Ensku liðin hafa nefnilega þurft að sætta sig við fimm töp í fyrstu sex leikjum sínum en Manchester-liðin, City og United, spila annan leikinn sinn í riðlakeppninni í kvöld. Arsenal og Manchester City hafa bæði tapað á heimavelli í keppninni í ár en Manchester United spilar sinn fyrsta heimaleik á móti Wolfsburg í kvöld.
Eini sigurinn kom hjá Chelsea þegar liðið vann 4-0 sigur á ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv í fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni í ár. Lítið hefur gengið hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og í gær tapaði liðið síðan 2-1 á móti Porto á útivelli.
Alfreð Finnbogason sá til þess að Arsenal tapað öðrum leiknum í röð í gær og lærisveinar Arsene Wenger eru því eina enska liðið sem er stigalaust eftir tvo leiki. Manchester-liðin gætu reyndar bæst í hópinn í kvöld.
Ensku liðin hafa reyndar skorað í öllum sex leikjum sínum en þau hafa líka fengið tvö mörk eða fleiri á sig í fimm af þessum sex leikjum. Tíu skoruð mörk er því ekki alslæmt en ellefu mörk fengin á sig er skelfileg tölfræði.
Þrátt fyrir að aðeins einni og hálfri umferð (af sex) sé lokið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þá eru ensku liðin aðeins einum ósigri frá því að jafna heildafjölda tapleikja í fyrra þegar ensku liðin lágu í sex af 24 leikjum sínum í riðlakeppninni. Manchester City, Chelsea og Arsenal voru einnig með þá en Liverpool var í staðinn fyrir Manchester United.
Ensku liðin eru ekki þekkt fyrir að tapa mörgum leikjum í riðlakeppninni sem sést vel á því að á árunum 2003 til 2011 þá töpuðu þau mest fimm leikjum samtals í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Slakt gengi ensku liðanna í Meistaradeildinni í ár í bland við dapurt gengi undanfarin ár þýðir að fjórða sæti Englands í Meistaradeildinni er í mikilli hættu. Breytist ekkert og ensku liðin detta jafnfljótt eða fyrr út og í fyrra er það allt eins líklegt að það verði aðeins þrjú ensk lið í meistaradeildinni tímabilið 2017 til 2018.
Leikir ensku liðanna í Meistaradeildinni í ár:
15. september
PSV Eindhoven - Manchester United 2-1
Manchester City - Juventus 1-2
16. september
Dinamo Zagreb - Arsenal 2-1
Chelsea - Maccabi Tel Aviv 4-0
29. september
Arsenal - Olympiakos 2-3
Porto - Chelsea 2-1
Sex leikir og fimm töp
Markatalan: -1 (10-11)
Ensku liðin í Meistaradeildinni: Fimm töp í sex leikjum
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið




Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning
Körfubolti

Þróttur skoraði sex og flaug áfram
Íslenski boltinn





Valur marði Fram í framlengingu
Íslenski boltinn