Ástarævintýrið hafið: Traust vantar á milli fjárfesta og kvikmyndabransans Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 28. september 2015 16:39 Eldhuginn Baltasar Kormákur hreif áhorfendur með sér inn í heim fjárfestinga og kvikmyndagerðar á málþingi á vegum RIFF. Vísir/GVA „
Samtalið milli fjárfesta og kvikmyndagerðarmanna er mjög takmarkað. Þetta er óþroskað samband, eins og unglingar að byrja saman. Hvorugur veit hvernig á að nálgast hinn,“ sagði Baltasar Kormákur Samper á málþingi á vegum Reykjavík International Film Festival, RIFF, í Norræna húsinu í dag. Yfirskrift þingsins var spurningin: „Er íslensk kvikmyndagerð góð fjárfesting?“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins, var fundarstjóri en þátttakendur í pallborðsumræðum auk Baltasars voru Heiðar Guðjónsson, framleiðandi Svartur á leik og fjárfestir, Agnes Johansen framleiðandi hjá RVK studios, Grímar Jónsson framleiðandi Hrúta, Gísli Gíslason framleiðandi og Rob Aft, fjárfestinga- og dreifingarráðgjafi. Mikil bjartsýni og jákvæðni varðandi framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar einkenndi málþingið; það nefndu bæði Þorgerður Katrín og áhorfendur úr sal.„Hardcore“ nálgun það sem íslensk kvikmyndagerð þarf „Fjárfesting í kvikmynd er bara eins og hver önnur fjárfesting,“ sagði Gísli Gíslason, lögfræðingur og framleiðandi kvikmynda á borð við Reykjavík Whale Watching Massacre og Vonarstræti. „Sumar ganga og sumar ekki. Maður þarf að taka sénsinn og hafa úthald og þol í að taka þátt í svona verkefni.“ Hann tók þátt í framleiðslu á nokkrum íslenskum myndum sem reyndust ekki arðbærar áður en hann framleiddi kvikmyndina Vonarstræti sem sló í gegn.Heiðar Guðjónsson, framleiðandi og fjárfestir, var með skýra sýn á málefnið.Vísir/GVAGrímar sagði vanta að fjárfestar kæmu snemma inn í verkefni, þegar verkefni er enn á hugmyndastigi. Þá væru fjárfestar vissulega að taka meiri áhættu en ættu þá von á meiri arði. Þegar fjárfest er í kvikmynd líta fjárfestar á það hvort um söluvænlega mynd sé að ræða sagði Heiðar en hann framleiddi Svartur á leik en tekjur af henni reyndust sjötíu milljónir á Íslandi og sextíu aukalega þegar myndin var seld erlendis. „Ég tel persónulega að ef við ætlum að efla kvikmyndagerð og ef við ætlum að byggja upp atvinnustarfsemi þá sé betra að reiða sig á fjármagn frá einkaaðilum heldur en hinu opinbera.“ Hann benti á að fyrir fjárfesti eins og sig sem er telst ekki til ástríðufjárfesta í kvikmyndabransanum skipti mestu máli að fá fjármagnið tilbaka.Málþingið fór fram í Norræna húsinu. Hér sést Þorgerður Katrín hlusta af athygli á framleiðandann Grímar Jónsson.Vísir/GVABaltasar Kormákur fagnaði viðhorfi Heiðars. „Þetta er nákvæmlega þessi nálgun sem við þurfum. Það er þetta hardcore: Er hægt að fá pening inn í verkefnið og er hægt að fá peninginn tilbaka,“ sagði Baltasar. Hann átti mjög auðvelt með að svara spurningunni og yfirskrift málþingsins. „Svarið er einfalt já. Hún getur verið mjög arðbær fjárfesting.“ Everest, nýjasta kvikmynd Baltasars hefur halað inn tæplega hundrað milljónum dollara á heimsvísu eins og staðan er í dag og enn á eftir að frumsýna myndina í nokkrum löndum.Vantar traust á kvikmyndagerðarmenn Baltasar sagðist hafa rekist á mikið af veggjum þegar hann tók að leita að fjármagni fyrir verkefnið Ófærð en tveir þættir af Ófærð verða sýndir á RIFF. „Við lentum í miklum ógöngum með bankakerfið vegna þess að þeir skilja þetta ekki,“ útskýrði leikstjórinn en mörg kvikmyndaverkefni lenda í vandræðum með sjóðstreymi því peningarnir eru fastir í samningum við aðila sem greiða aðeins eftir að myndin eða þættirnir eru komnir í sýningu. Hann sagði vanta traust í bankakerfið og traust af hálfu fjárfesta á kvikmyndagerðarmönnum. „Við höfum ekki verið teknir alvarlega sem fjárfestingarkostur.“ Hann sagði ekkert gleðja sig meira en þegar fjárfestar græða peninga því að þá sé hægt að fara til þeirra aftur og sækja peninga fyrir fleiri kvikmyndum.Laufey Guðjónsdóttir hjá Kvikmyndamiðstöð var áhorfandi í sal og lagði orð í belg. „Það er gegnumgangandi vandi að það trúir enginn og það eru svo fáir sem eru tilbúnir að setja sig inn í hugmyndir. Það er svo miklu auðveldara að koma að einhverju sem er áþreifanlegt. Það eru sérfræðingar með rosalega mikla listræna þekkingu sem verður að vera til staðar í hugmyndavinnunni og það verður að byggja þetta traust á milli þeirra og fjárfesta.“Vælutónninn í kvikmyndagerðarmönnum verður að víkja Baltasar var afdráttarlaus í ráðleggingum sínum til kvikmyndagerðarmanna en ljóst er að leikstjórinn hefur ekki byggt árangur sinn á skýjaborgum. „Ekki biðja um peninga nema þú sért 99 prósent viss um að þú getir unnið þá tilbaka, ef líkurnar eru meiri en minni á að þú tapir peningum fjárfestanna er þetta einskis virði. Það mun bara búa til magasár og leiðindi.“ Hann sagði það besta en jafnframt það versta sem hann gat lent í að tapa peningum annarra.Baltasar Kormákur er töffari frá toppi til táar. Vísir/GVA„Ekki ætlast til þess að fólk sé tilbúið til að fjármagna draumana þína og tapa á því. Það verður að vera raunhæft plan og hugmynd á bakvið verkefnið. Mér finnst svolítill vælutónn stundum í kvikmyndagerðarmönnum. Svona „mig langar að gera kvikmynd, af hverju er fólk ekki til í að borga fyrir hana?“ Það er ekki sjálfsagt. Ef þú tekur pening bankamanna þá verðurðu að skila þeim,“ sagði Baltasar. Hann hefur lagt á sig mikla vinnu síðastliðin tuttugu ár til þess að komast á þann stað sem hann er í dag en hann seldi nýverið þáttaröðina Ófærð til Bandaríkjanna á 1,2 milljónir dollara en það eru 153 milljónir íslenskra króna.Kvikmyndir á íslensku geta verið söluvænlegar „Og ég er að tala um upprunalegu Ófærð – á íslensku. Þetta er alveg hægt. Það hefði engum grunað að við gætum selt Ófærð fyrir nokkrum árum en allt þetta vandamál með tungumál er að verða minna.“ Úr sal kom spurning hvað varðar tungumál, hvort það væri vænlegra til árangurs að búa til mynd á ensku ef kvikmyndagerðamaður vill fá erlenda fjárfesti inn í verkefnið. „Erlendir fjárfestar eru ekki að leita að nýrri Transformers mynd frá Íslandi. Það sem þeir eru að leita eftir eru gæði,“ sagði Rob Aft sem fylgst hefur með íslenskri kvikmyndagerð um nokkurt skeið. „Ef bestu gæðin fást með því að hafa myndina á íslensku gerðu hana þá á íslensku.“Málþingið var nokkuð vel sótt.Vísir/GVABaltasar sagði geta verið meira „authentic“ eða ósvikið að gera íslenska mynd á Íslandi en að hins vegar snerist kvikmyndagerð að miklu leyti um að skapa kúltúr. „Tungumálið er mikils virði en það er ekki allt. Dansmyndir hafa ákveðin kúltúr og silent myndir, eru þær ekki líka kúltúr?“ Grímar, framleiðandi Hrúta sem hefur átt mikilli velgengni að fagna, til dæmis í Cannes, telur jákvætt svar við spurningu þingsins því háð að kvikmyndir fái grunnfjármögnun frá heimalandinu og því þurfi að stórauka framlög til Kvikmyndamistöðvar. Þegar grunnfjármögnun liggur fyrir sé hægt að leita til fjárfesta. „Án grunnfjármögnunar frá heimalandinu á viðkomandi verkefni ekki tækifæri til þess að sækjast eftir erlendri fjármögnun sem getur lyft verkefninu á nýjar hæðir.“ Allir þátttakendur í pallborðsumræðum voru sammála um að fjárfesting í kvikmyndum á Íslandi sé góð fjárfesting ef rétt er að henni staðið. „Ástarævintýrið er hafið,“ sagði Þorgerður Katrín með tilvísan í óreyndu unglingana hans Baltasars. „Er íslensk kvikmynd góð fjárfesting? Ég held að svarið sá já.“
RIFF Tengdar fréttir Þættirnir Ófærð seldir á Bandaríkjamarkað fyrir 153 milljónir Þetta kom fram í máli Baltasar Kormáks á fundinum Er íslensk kvikmynd góð fjárfesting? sem nú fer fram í Norræna húsinu. 28. september 2015 14:41 Barist um endurgerðarrétt á Ófærð fyrir Bandaríkjamarkað Fjórir þekktir aðilar eru í samkeppni um að öðlast endurgerðarréttinn á nýjum þáttum Baltasar Kormáks 28. september 2015 16:46 RIFF að ná hápunkti - Heiðursgestirnir mættir RIFF hátíðin er nú að hápunkti sínum en von er á heiðursgestum hátíðarinnar til landsins í dag og á morgun. 28. september 2015 17:30 Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Trump tókst að fella Massie Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Fleiri fréttir Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Sjá meira
Þættirnir Ófærð seldir á Bandaríkjamarkað fyrir 153 milljónir Þetta kom fram í máli Baltasar Kormáks á fundinum Er íslensk kvikmynd góð fjárfesting? sem nú fer fram í Norræna húsinu. 28. september 2015 14:41
Barist um endurgerðarrétt á Ófærð fyrir Bandaríkjamarkað Fjórir þekktir aðilar eru í samkeppni um að öðlast endurgerðarréttinn á nýjum þáttum Baltasar Kormáks 28. september 2015 16:46
RIFF að ná hápunkti - Heiðursgestirnir mættir RIFF hátíðin er nú að hápunkti sínum en von er á heiðursgestum hátíðarinnar til landsins í dag og á morgun. 28. september 2015 17:30