Stjarnan og Breiðablik mætast í 17. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst hálftíma fyrir leik.
Liðin eru á ólíkum stað í deildinni nú miðað við stöðu þeirra þegar þau mættust í Garðabænum í fyrra, þá einnig í 17. umferð.
Stjarnan var þá í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn sem liðið vann svo eftirminnilega í lokaumferðinni. Blikar voru hins vegar í baráttu á hinum enda töflunnar og björguðu sér ekki endanlega frá falli fyrr en undir lok móts.
Ólafur Karl Finsen skoraði eina mark fyrri hálfleiks, úr vítaspyrnu á 44. mínútu, en hann fór meiddur af velli mínútu seinna.
Blikar mættu mjög ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og Guðjón Pétur Lýðsson jafnaði metin með frábæru marki beint úr aukaspyrnu á 49. mínútu. Guðjón skoraði alls fjögur mörk beint úr aukaspyrnum í fyrra.
Aðeins þremur mínútum seinna tók Guðjón aukaspyrnu við vítateigshornið vinstra megin, sendi boltann á fjærstöngina á Arnór Svein Aðalsteinsson sem skallaði boltann fyrir markið á Damir Muminovic sem skoraði af stuttu færi.
En eins og svo oft í fyrra komu Stjörnumenn til baka eftir að hafa lent undir og Veigar Páll Gunnarsson jafnaði metin með skalla eftir frábæra fyrir Arnars Más Björgvinssonar á 82. mínútu.
Fleiri urðu mörkin ekki en þremur mínútum fyrir leikslok fékk Martin Rauschenberg, miðvörður Stjörnunnar að líta rauða spjaldið fyrir að brjóta á Árna Vilhjálmssyni sem var sloppinn í gegn.
Þetta var eitt af tólf jafnteflum sem Breiðablik gerði í Pepsi-deildinni 2014 en liðið endaði að lokum í 7. sæti með 27 stig.
Stjarnan varð sem áður sagði Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins en liðið fór taplaust í gegnum mótið.
Mörkin og helstu atvik úr leik Stjörnunnar og Breiðabliks í fyrra má sjá í spilaranum hér að ofan.
Veigar tryggði Stjörnunni stig í fyrra | Myndband
Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mest lesið





„Að lokum var það betra liðið sem vann“
Körfubolti


Tatum með slitna hásin
Körfubolti

Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta
Íslenski boltinn

Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz
Enski boltinn

Fleiri fréttir

Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
